Fréttastofa RÚV
Ísland spilar tvo leiki í undankeppni HM kvenna í fótbolta í apríl. Báðir leikirnir verða á Laugardalsvelli, sá fyrri við Úkraínu. „Það er ekkert hægt að horfa fram hjá því að þetta er lið sem við þurfum að vinna,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, en hann kynnti leikmannahópinn fyrir leikina tvo í dag. „Og við horfum algjörlega á þann leik sem gríðarlega mikilvægan í framhaldinu.“ „Úkraínska liðið er mjög áhugavert. Þær eru mjög aggresífar, beinskeyttar og það er gríðarleg vinnusemi í þessu liði. Það verður erfitt að spila á móti þeim. Þær eru ekki neitt í því að halda mikið í boltann, það er bara stysta leið að marki og þær eru með fína leikmenn, framlínan þeirra er sterk.“ Úkraína vann Austurríki í æfingaleik í desember, 3-2, og gerði 1-1 jafntefli við Skotland í sama glugga svo þær hafa sýnt að þær geti alveg náð í úrslit. Þorsteinn segir samt að Ísland ætli sér að sækja til sigurs í leiknum. Allt viðtalið við landsliðsþjálfarann má sjá hér í spilaranum: Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekur á móti Úkraínu 14. apríl og Englandi 18. apríl í undankeppni HM. Þjálfari liðsins segir leikina gríðarmikilvæga og hann vill fá sem flesta stuðningsmenn á völlinn. Þurfa að þora Ísland er búið að spila tvo leiki í undankeppninni; útileiki við Spán, 3-0 tap, og England, 2-0 tap. Auk Úkraínuleiksins fær Ísland enska liðið einnig í heimsókn og þar vill Þorsteinn gera betur en í fyrri leiknum: „Fyrst og fremst þurfum við bara að vera aggresífari fram á við og þora að stíga á móti þeim. Þora bara að vera við sjálfar á vellinum, ég held að það sé svona grundvallaratriði á móti þeim; að þora að vera með boltann og leita inn í svæðin sem eru þarna og verða teiknuð upp fyrir þær fyrir leikinn.“ „Stelpurnar þurfa bara að þora að vera þær sjálfar.“ Linda Líf er spennandi leikmaður Einn nýliði er í hópnum að þessu sinni, Linda Líf Boama sem gekk í raðir Kristianstad í Svíþjóð í vetur frá Víkingi. Þorsteinn er spenntur að fá hana í liðið: „Hún er búin að taka framförum núna, eftir smá ströggl í kannski tvö, þrjú ár þar sem hún var að glíma við meiðsli og höfuðáverka og annað. Búið að vera stígandi í hennar leik og hennar formi síðustu 18 mánuði.“ „Ég er búinn að fylgjast lengi með henni og var alltaf að vonast eftir því að hún næði svona samfelldu í leiki og æfingar og það er búið að gerast núna svona kannski 18 mánuði plús þannig að mér fannst þetta gott tækifæri til að taka hana inn.“ Stuðningurinn mikilvægur Íslenska landsliðið verður með opna æfingu 11. apríl og þá geta áhorfendur merkt við liðið sitt þegar þeir kaupa miða á leikina og rennur þá hlutfall miðaverðsins til félagsins. Það er því ýmislegt reynt til að fá sem flesta á völlinn í leikjunum tveimur. „Við erum að vonast til að fólk mæti og styðji leikmennina og landsliðið til góðra verka. Úkraínuleikurinn er mikilvægur leikur og við viljum fá fólk á völlinn þar líka, ekki bara að koma og horfa á lið Englands hérna á móti okkur.“ „Stuðningur skiptir máli og fleytt okkur yfir erfiða hjalla.“ Miðasala á leikinn gegn Úkraínu hefst þriðjudaginn 31. mars og fyrir leikinn gegn Englandi miðvikudaginn 1. apríl. Báðir leikirnir verða svo í beinni útsendingu á RÚV.
Go to News Site