Ekkert ferðaveður og vegir víða ófærir | Collector
Ekkert ferðaveður og vegir víða ófærir
Fréttastofa RÚV

Ekkert ferðaveður og vegir víða ófærir

Ófært er frá sunnanverðri Holtavörðuheiði að Varmahlíð, og bæði um Vatnsskarð og Þverárfjall. Lögreglan á Norðurlandi vestra greinir frá þessu í tilkynningu á Facebook-aðgangi sínum , en þar segir jafnframt að ekkert ferðaveður sé í umdæminu. Það er ekki aðeins á Norðurlandi vestra sem vegir eru ófærir. Nesjavallaleið og Þingvallavegur um Mosfellsheiði og Kjósarskarðsvegur við Fremri-Háls eru það einnig. Hringvegurinn um Hellisheiði og Þrengslavegur eru hins vegar opnir, en samkvæmt vefsíðu Vegagerðarinnar, umferdin.is , er hált á þeim. Þá er ófært um Djúpveg á milli Skarðsfjalls og Súðavíkur á norðanverðum Vestfjörðum. Gul veðurviðvörun er í gildi í Faxaflóa, Breiðafirði, á Ströndum og Norðurlandi vestra, á Suðausturlandi og á Miðhálendinu vegna hvassviðris eða storma. Á miðnætti fellur gul viðvörun í Breiðafirði úr gildi. Á sama tíma tekur gul viðvörun gildi á Austfjörðum.

Go to News Site