Fréttastofa RÚV
Fulltrúar Framsóknarflokks og Miðflokks segja fjármálaætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í gær metnaðarlausa. Útgjöld til samgöngumála valdi sérstökum vonbrigðum enda hafi ríkið ráðist í gjaldheimtu undir því yfirskini að afraksturinn ætti að renna til samgangna. „Hún er vonbrigði þessi áætlun. Það er verið að tala hér um hallalaus fjárlög 2027. Afgangurinn verður 1,1 milljarður sem er náttúrlega ekki neitt í 1.700 milljarða króna fjárlögum,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins. Hann segir útgjöld til framhaldsskóla og löggæslu vonbrigði og ekki síður til samgangna. „Við erum að sjá framlög til samgöngumála á niðurleið þrátt fyrir loforð um það í fjárlagaumræðunni um átján milljarða sem áttu að koma inn á ári í formi kílómetragjalds, vörugjalda og veiðigjalda. Það er ekki að sjást hér. Svona mætti lengi telja á meðan það er verið að bæta fjórum milljörðum í utanríkismál. Mér finnst þetta röng forgangsröðun.” Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, tekur undir þetta. „Allir muna vörugjöldin og veiðigjöldin. Allt átti þetta að renna til innviðauppbyggingar en samkvæmt henni er engin hækkun til samgangna út tímabilið. Ég hefði viljað bæta svolítið í samgöngumálin.“ Óttast auknar álögur Orðalag í áætluninni um aukna tekjuöflun er frekar almennt orðið í áætluninni en þó má lesa út úr henni að hækka eigi bankaskatt og að álögur á eldsneyti og ökutæki verði auknar. Þingmennirnir gera ráð fyrir að svo verði. „Þar erum við bara að sjá tölur upp á 21-58 milljarða aukningu á gjöldum og skattahækkunum sem eru boðaðar í þessu frumvarpi. Ofan á 30 milljarða króna skattahækkanir sem voru settar á okkur um áramótin,” segir Stefán. Karl Gauti segir orðalagið leik að orðum. „Þau eru enn og aftur búin að endurskíra allt sem heitir skattahækkanir og núna heitir þetta skattaumbætur. Þannig að menn eiga ekki von á góðu vegna þess að slíkt boðar einungis skattahækkanir af hálfu þessarar ríkisstjórnar,” segir Karl Gauti sem hefur miklar efasemdir um að áætlun um hallalaus fjárlög standi. „Miðað við efnahagsforsendurnar núna þá stórefast ég um að það gerist. Einn milljarður í afgang er ekki háleitt markmið, þetta er brot úr prómilli.” Stjórnarandstæðingar í fjárlaganefnd Alþingis segja gjaldheimtu sem búið var að eyrnamerkja til uppbyggingar samgönguinnviða ekki skila sér í nýrri fjármálaætlun ríkisstjórnarinnar.
Go to News Site