Eldur kviknaði í bíl á Bíldshöfða
Fréttastofa RÚV

Eldur kviknaði í bíl á Bíldshöfða

Einn af dælubílum Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk útkall kl. 01:20 í nótt vegna bíls sem stóð í ljósum logum á bílaplaninu við Húsgagnahöllina á Bíldhöfða. Bíllinn er talinn hafa verið mannlaus en vegfarendur hringdu í neyðarlínuna og tilkynntu um brunann, samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn dælubíll var sendur á staðinn og slökkvistarf gekk hratt og vel fyrir sig. Eldsupptök eru ókunn en altjón varð á bifreiðinni.

Go to News Site