Bandaríkjaforseti segir NATO-þjóðir ekki vera til staðar fyrir Bandaríkin
Fréttastofa RÚV

Bandaríkjaforseti segir NATO-þjóðir ekki vera til staðar fyrir Bandaríkin

Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi bandaþjóðir í Atlantshafsbandalaginu í gær og sagði að hann væri vonsvikinn yfir því að Bandaríkin hefðu neitað að senda her til aðstoða við að tryggja Hormússund. Hann lét þessi ummæli falla í ræðu á fjárfestingarþinginu Future Investment Initiative Institute's summit í Flórída sem haldið var í gær. Hann sagði að Bandaríkin verji hundruðum milljarða dollara á hverju ári í NATO. Hann sagði Bandaríkin alltaf hafa verið til staðar fyrir NATO-þjóðirnar, en bandalagsþjóðir hafi ekki verið til staðar fyrir Bandaríkin þegar á reyndi. „Þau voru bara ekki til staðar,“ sagði Trump úr ræðupúlti á fjárfestingarþinginu. „Við verjum hundruðum milljarða dollara í Atlantshafsbandalagið á ári, hundruðum, til að verja þau, og við höfum alltaf verið til staðar fyrir þau en núna, miðað við gjörðir þeirra, þá held ég að við þurfum þess ekki, er það?“ Hann hélt svo áfram og sagði: „Af hverju ættum við að vera til staðar fyrir þau ef þau eru ekki til staðar fyrir okkur? Þau voru ekki til staðar fyrir okkur,“ sagði Bandaríkjaforseti. Trump hefur áður lýst yfir óánægju sinni með vestrænar bandalagsþjóðir fyrir að aðstoða ekki Bandaríkjaher við að tryggja og opna Hormússund frá því stríðið braust út í Mið-Austurlöndum fyrir mánuði. Bretar, Frakkar, Þjóðverjar og Japanar hafa lýst yfir að þeir séu tilbúnir að leggja sitt af mörkum til viðeigandi aðgerða. Enn sem komið er hafa þjóðirnar þó ekki skuldbundið sig til neinna aðgerða. Bandaríkjaforseti hefur látið nokkur gagnrýnin ummæli falla um NATO vegna þessa. Í síðustu viku kallaði hann bandalagsþjóðir hugleysingja og sagði að bandalagið væri einungis pappírstígur án Bandaríkjanna. Í fyrradag sagði hann í færslu á samskiptamiðlinum Truth Social, að Bandaríkin þörfnuðust einskis frá Atlantshafsbandalaginu. Bandaríkjaforseti gagnrýndi bandaþjóðir í Atlantshafsbandalaginu fyrir að vera ekki til staðar fyrir Bandaríkin þegar á reyndi til að tryggja Hormússund. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann gagnrýnir bandalagið.

Go to News Site