Fréttastofa RÚV
Sjö af átta þingmönnum Miðflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um bann við hylmingu andlits í opinberu rými. Í greinargerð um þingsályktunartillöguna kemur fram að tilefnið sé að skapa skýran og heildstæðan lagaramma um atriði sem varða bæði almannaöryggi, framkvæmd opinberrar þjónustu og grundvallarskilyrði mannlegra samskipta í opnu og lýðræðislegu samfélagi. Þar segir einnig að sértæka og skýra meginreglu sem tekur til kylmingar andlits í opinberu rými skorti í því almenna ákvæði um allsherjarreglu, öryggi og heimildir stjórnvalda til að krefjast auðkenningar við tilteknar aðstæður á Íslandi. Flutningsmenn tillögunnar eru Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Snorri Másson og Þorgrímur Sigmundsson. Athygli vekur að Sigríður Á. Andersen, formaður þingflokksins, er ekki meðal flutningsmanna tillögunnar. Í greinargerð um tillöguna kemur fram að fjölmörg Evrópuríki hafi á síðustu árum sett lög sem banna eða takmarka hylmingu andlits á almannafæri, s.s. Frakkland, Danmörk og Holland. Tekið er fram að lagasetning um takmörkun á hylmingu andlits verði að vera trúarlega og menningarlega hlutlaus og taka jafnt til allra sem hylja andlit sitt, óháð tilefni og vera byggð á málefnalegum sjónarmiðum sem lúta að öryggi, auðkenningu og réttindum annarra. Markmið lagasetningar af þessu tagi er ekki sögð vera að takmarka trúariðkun eða tjáningu umfram það sem brýnir almannahagsmunir krefjast heldur að móta almenna og skýra reglu um sýnileika andlits í þeim aðstæðum þar sem auðkenning og gagnkvæm samskipti skipta grundvallarmáli.
Go to News Site