Haukakonur byrja úrslitakeppnina á sigri
Fréttastofa RÚV

Haukakonur byrja úrslitakeppnina á sigri

Haukar unnu KA/Þór 27-24 í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni úrvalsdeildar kvenna í handbolta í kvöld. KA/Þór var yfir í hálfleik, 11-13. Jafnt var 18-18 þegar tíu mínútu voru liðnar af seinni hálfleik en þá náðu Haukakonur forystu sem þær létu ekki af hendi. Vinna þarf tvo leiki til að komast í undanúrslitaeinvígi gegn ÍBV. Haukakonur byrja úrslitakeppnina á sigri gegn KA/Þór.RÚV / Mummi Lú Valur og ÍBV sitja hjá í fyrstu umferð. Fyrr í dag vann Fram sigur á ÍR, 23-27 . Sigurvegarinn úr því einvígi mætir deildarmeisturum Vals í undanúrslitum.

Go to News Site