Fréttastofa RÚV
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist vongóð um að hægt verði að koma til móts við þá hópa sem finni hvað mest fyrir áhrifum aukinnar verðbólgu og hækkunar stýrivaxta. Hún vill sjá ráðdeild í opinberum rekstri. „Ég vil að farið sé vel með opinbera fjármuni sem eru jú gjöldin sem við sem búum hér, launafólk og skattgreiðendur, greiðum til þess að hægt sé að reka hér ríki. Til þess að hægt sé að vera með gott og eðlilegt velferðarkerfi og tryggja að innviðir okkar þróist í takt við þarfir fólksins sem býr hérna,“ segir Sólveig Anna sem var gestur í Vikulokunum á Rás 1 í dag. Innt eftir viðbrögðum um fjármálaáætlun næstu fimm ára sem kynnt var í vikunni segir Sólveig ekki ganga að þau sem séu oft með minnst á milli handanna verði verst úti í núverandi efnahagsástandi. Breiðfylking verkalýðsfélaga hafi sýnt hugrekki með því að fallast á hófstilltar hækkanir við gerð kjarasamninga vorið 2024 til að ná niður verðbólgu og vöxtum, en hvorki Samtök atvinnulífsins né hið opinbera hafi staðið við gefin loforð. Þó sé ekki öll von úti. „Það eru enn þá tækifæri til staðar og ef fjármálaráðherra meinar það sem hann hefur verið að segja undanfarið, að það þurfi að koma til móts við þá sem einmitt verst hafa farið út úr þessu, sem eru láglaunafólk og verkafólk, fólkið sem atvinnuleysið bitnar á, það er aðallega aðflutt verkafólk og svo framvegis. Þá er ég sannfærð um það að við getum sest niður og fundið lausnir með stjórnvöldum og svo þá auðvitað með Samtökum atvinnulífsins til þess einmitt að leggja aftur okkar af mörkum.“ Hægt er að hlusta á Vikulokin í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Formaður Eflingar ræddi fjármálaáætlun áranna 2027-2031 í Vikulokunum á Rás 1. Hún segir hvorki hið opinbera né Samtök atvinnulífsins hafa staðið við gefin loforð við gerð kjarasamninga vorið 2024. Þó séu enn tækifæri til að leita lausna.
Go to News Site