Rúm 28% kvenna í Evrópu beittar ofbeldi – Samfélagið þarf að breytast og gerendur að sæta ábyrgð
Fréttastofa RÚV

Rúm 28% kvenna í Evrópu beittar ofbeldi – Samfélagið þarf að breytast og gerendur að sæta ábyrgð

28,4 prósent kvenna og stúlkna í Evrópu eru beittar líkamlegu og/eða kynferðislegu ofbeldi einhvern tíma á lífsleiðinni. Þetta kemur fram í samantekt Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem vakin var athygli á í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrr í mánuðinum. Þar er rætt við sérfræðinga sem telja að hlutfallið sé enn hærra. Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir tölurnar ekki koma á óvart. Stöðugur straumur þolenda ofbeldis sé í Bjarkarhlíð og að heimilið sé enn hættulegasti staðurinn fyrir konuna. Þá sýni tilkynningar til lögreglu að ofbeldi sé útbreitt. Tilkynningar um heimilisofbeldi til lögreglu í fyrra hafi verið um þúsund, eða tæplega þrjú á dag. Hún segir ekki til nákvæma tölfræði um ofbeldi hér á landi en telur að staðan sé svipuð og í öðrum ríkjum Evrópu. Tíðni líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis gegn konum og stúlkum í nánu sambandi hefur minnkað sáralítið á heimsvísu síðustu áratugi. Teymisstjóri Bjarkarhlíðar segir samfélagið þurfa að breytast og gerendur að taka ábyrgð. Fleiri þolendur en gerendur Tíðni ofbeldis í nánu sambandi gegn konum og stúlkum á heimsvísu hefur aðeins minnkað um 0,2 prósent árlega að meðaltali á þessari öld. „Samfélagið þarf auðvitað að breytast og til þess að það gerist þarf að leggja áherslu á það að gerendur taki ábyrgð,“ segir Jenný Kristín spurð um það hvaða ástæður séu taldar að baki því að tölur um ofbeldi lækki svo hægt. Hún bendir á að það séu mun fleiri þolendur en gerendur. Ástæðan sé sú að gerendur beiti yfirleitt ekki eina konu ofbeldi, þau í Bjarkartíð sjái að þegar einn þolandi losni úr ofbeldissambandi sé gerandinn fljótur að finna sér í nýjan þolanda þannig að það eru oft margir þolendur sem hafa verið beittir ofbeldi af sama geranda. Ein af hverjum fjórum ungum konum eða stúlkum hefur verið beitt ofbeldi af hálfu unnusta eða maka, samkvæmt greiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Margar hafa einnig verið beittar kynferðislegu- eða annars konar ofbeldi af öðrum. Tugþúsundir kvenna drepnar ár hvert Á heimsvísu voru 83.000 konur og stúlkur drepnar af ásetningi 2024, samkvæmt Sameinuðu þjóðunum. Í 60 prósentum tilvika var morðinginn maki, kærasti eða annar náinn fjölskyldumeðlimur. Það þýðir að slíkt morð er framið á næstum því tíu mínútna fresti. Daglega voru morðin að meðaltali 137.

Go to News Site