Fréttastofa RÚV
Línur héldu áfram að skýrast í dag fyrir 32 liða úrslit Mjólkurbikarkeppni karla í fótbolta þegar átta leikir fóru fram í annarri umferð. Ýmir og Árbær sem leika í 3. deild komust áfram eins og fyrstu deildarliðið Ægir Þorlákshöfn sem mætir Árbæ í 32 liða úrslitunum. Leiknir Reykjavík komst áfram og mætir ríkjandi bikarmeisturum Vestra sem koma beint inn í 32 liða úrslitin. Þróttur Reykjavík sem leikur í 1. deild vann 3-1 sigur á 2. deildarliðli Víkings úr Ólafsvík og Þróttarar mæta Bestu deildarliði ÍBV í 32 liða úrslitunum í Vestmannaeyjum. Kormákur/Hvöt mætir Breiðabliki Kormákur/Hvöt sem leikur í 2. deild vann 1. deildarlið Völsungs í framlengdum leik, 2-3 á Húsavík, þar sem staðan var jöfn, 2-2, eftir venjulegan leiktíma. Kormákur/Hvöt mætir Breiðabliki í 32 liða úrslitunum um páskahelgina. Fyrstu deildarlið Grindavíkur komst einnig áfram með 0-2 sigri á Elliða sem leikur í 4. deild. Ýmis sem leikur í 3. deild vann risasigur, 10-0, á KFS sem leikur í 5. deild. Ýmir mætir annað hvort ÍR eða Aftureldingu í 32 liða úrslitunum. Úrslit dagsins Þróttur R. - Víkingur Ólafsvík 3-1 KFA - Sindri 1-0 Völsungur - Kormákur/Hvöt 2-3 Elliði - Grindavík 0-2 Léttir - Árbær 3-5 Ýmir - KFS 10-0 Ægir - Reynir Sandgerði 2-0 Leiknir R. - Smári 3-0 Viðar Örn með þrennu Þrír leikir fóru fram í annarri umferð bikarkeppninnar í gærkvöld. Selfoss úr annarri deild burstaði Augnablik 7-1. Viðar Örn Kjartansson skoraði þrennu fyrir Selfoss sem flýgur áfram í 32 liða úrslitin og mætir þar Bestu deildarliði Stjörnunnar. Tveir aðrir leikir fóru fram í gærkvöld, 1. deildarlið HK vann 4-0 sigur á Boltafélaginu úr Fossvogi, BF 108 sem leikur í 5. deild. HK mætir Fjölni eða Víði í 32 liða úrslitunum. Þá vann Höttur úr 3. deild öruggan sigur á Neista frá Djúpavogi, 5-0, og mætir KA í 32 liða úrslitunum. Eftirfarandi leikjum er ólokið í annarri umferð. Tindastóll - Magni 29. mars kl. 14:00 ÍR - Afturelding 29. mars kl. 20:00 Njarðvík - Hvíti Riddarinn 30. mars kl. 19:00 Álftanes - Kári 30. mars kl. 19:00 Haukar - KFR 30. mars kl. 19:00 Fjölnir - Víðir 1. apríl kl. 19:00 Sjá nánar: Mjólkurbikar karla á vef KSÍ Fimm sjónvarpsleikir í 32 liða úrslitunum Liðin úr Bestu deildinni koma beint inn í 32 liða úrslitin og var dregið í þau í vikunni. 32 liða úrslitin hefjast með sjö leikjum á laugardeginum um páskahelgina, 4. apríl. Fimm leikir verða sýndir beint á rásum RÚV og allir leikirnir verða gerðir upp í Bikarkvöldi á RÚV annan í páskum. 32 liða úrslitin ÍBV - Þróttur Reykjavík - 4. apríl kl. 12:00 Kormákur/Hvöt - Breiðablik - 4. apríl kl. 14:00 Þór - FH - 4. apríl kl. 14:00 Beint á RÚV Grótta - Álftanes eða Kári - 4. apríl kl. 14:00 Höttur - KA - 4. apríl kl. 15:00 Vestri - Leiknir Reykjavík - 4. apríl kl. 16:00 Fram - Víkingur Reykjavík - 4. apríl kl. 17:00 Beint á RÚV 2 Tindastóll eða Magni - Njarðvík eða Hvíti Riddarinn - 5. apríl kl. 15:00 Stjarnan - Selfoss - 5. apríl kl. 15:00 Beint á RÚV ÍR eða Afturelding - Ýmir - 5. apríl kl. 15:00 Árbær - Ægir - 5. apríl kl. 15:00 Grindavík - Keflavík - 6. apríl kl. 13:00 Beint á RÚV 2 ÍA - Haukar eða KFR - 6. apríl kl. 13:00 Fjölnir eða Víðir - HK - 6. apríl kl. 13:00 Fylkir - KFA - 6. apríl kl. 14:00 KR - Valur - 6. apríl kl. 16:00 Beint á RÚV Bikarkvöld kl. 17:55 - Beint á RÚV Sjá allar beinar íþróttaútsendingar framundan á rásum RÚV
Go to News Site