Fréttastofa RÚV
Íranski byltingarvörðurinn hefur hótað árásum á bandaríska háskóla í Mið-Austurlöndum, eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á tvo háskóla í Teheran í gær. Ekki hefur verið tilkynnt um mannfall en byggingar skemmdust í árásinni. Í tilkynningu frá byltingarverðinum sem birt var í írönskum ríkisfjölmiðli í dag kom fram að ef Bandaríkjastjórn vilji forðast árásir á bandaríska háskóla í þessum heimshluta þá verði hún að fordæma árásirnar á háskólana tvo fyrir hádegi á mánudaginn. Í tilkynningunni var öllu starfsfólki skólanna, kennurum, og nemendum bandarísku háskólanna, sem og íbúum í nágrenni háskólanna, ráðlagt að vera ekki í kílómetrers fjarlægð frá háskólasvæðunum. Fjöldi bandarískra háskóla er í Mið-Austurlöndum, svo sem Texas A&M University í Katar og New York University í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Go to News Site