Til skoðunar að endurvekja aðgangseyri en aðeins fyrir erlenda gesti
Fréttastofa RÚV

Til skoðunar að endurvekja aðgangseyri en aðeins fyrir erlenda gesti

Breskir ráðamenn hafa til skoðunar að rukka erlenda ferðamenn um aðgangseyri á opinberum söfnum á Englandi. Ókeypis hefur verið inn á söfnin frá 2001. Hugmyndin er viðbragð við skýrslu breska listráðsins frá því í desember þar sem lagðar voru til ýmsar nýjar fjármögnunarleiðir. Ráðið fjármagnar menningarstofnanir með fé sem það fær frá hinu opinbera og breska lottóinu. Ráðamenn segja þetta geta styrkt fjárhag safnanna til framtíðar. Þetta geti líka tryggt armslengdarsjónarmið því listráðið hættir að vera háð fjármagni frá hinu opinbera. 40-50% gesta koma erlendis frá Efasemdaraddir heyrast þó úr menningargeiranum. Alison Cole, stjórnandi hugveitu um menningarmál, segir hugmyndina afleita. Í samtali við Guardian segir hún sérstakt gistinátta- eða ferðamannagjald betur til þess fallið að ná í tekjurnar. Rannsóknir sýna að sjö af hverjum tíu eru fylgjandi því að slíkt gjald sé notað til að niðurgreiða ókeypis aðgang að söfnum. Þá segir hún í samtali við Artnet News að stjórnvöld ættu að fagna 25 ára afmæli löggjafarinnar sem tryggði ókeypis aðgang að söfnum frekar en að grafa undan henni. Líta megi á söfn sem menntastofnanir en ekki aðeins ferðamannastaði. Ekkert kostar inn á mörg vinsælustu söfn Bretlands, líkt og British Museum, náttúrugripasafnið í London og listasöfnin National Gallery og Tate. Milljónir gesta heimsækja þau á ári hverju. Á bilinu 40-50% gesta koma erlendis frá samkvæmt opinberum tölum .

Go to News Site