Vetrarfærð, snjókoma, slydduél og stinningskaldi
Fréttastofa RÚV

Vetrarfærð, snjókoma, slydduél og stinningskaldi

Engar veðurviðvaranir eru í gildi á landinu í dag, en í gær voru gular viðvaranir víða í gildi um slæma færð. Mörgum leiðum var lokað vegna þessa, meðal annars um Hellisheiði og Þrengsli á Suðurlandi og Bröttubrekku á Vesturlandi en búið er að opna vegina. Enn er lokað um Holtavörðuheiði en unnið er að mokstri. Vegir um Fjarðarheiði og Fagradal á Austurlandi eru lokaðir en verða opnaðir með morgninum. Flestir fjallavegir á Vestfjörðum eru lokaðir og er ekki stefnt á mokstur á Dynjandisheiði í dag. Lægð yfir Grænlandssundi og austur af landinu Búast má við vestan og suðvestan kalda eða stinningskalda á sunnanverðu landinu með skúrum eða slydduéljum í dag, vegna lægðar yfir Grænlandssundi og austur af landinu. Norðan- og austanlands verður norðaustan 8-15 m/s með snjókomu en hægari vindur inn til landsins. Er líður á daginn snýst í norðvestan 10-18 m/s á Austurlandi og Austfjörðum. Hiti um eða yfir frostmarki. Á morgun verður suðvestan kaldi eða stinningskaldi með skúrum eða éljum en annað kvöld nálgast skil úr suðvestri með vaxandi suðaustanátt og snjókomu eða rigningu.

Go to News Site