Fréttastofa RÚV
Hentugasti tíminn til að klippa tré og limgerði er um miðjan mars og fram í byrjun maí, segir Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands. Á þessum tíma er lítið af sveppagróum í loftinu sem geta haft slæm áhrif á nýklipptan trjágróður. Því sé best að bíða ekki of lengi. „Það er yfirleitt það sem er skaðvaldurinn, að það hlaupi svona sýking sveppagró sem setjast í sárin.“ Um að gera að spreyta sig Brynjólfur segir um að gera að spreyta sig við að klippa gróðurinn. „Sjálfur byrjaði ég nú þannig að ég prófaði mig bara áfram. Það er nú aldrei neinn verulegur skaði sem hlýst af því að prófa sig sjálfur áfram. Menn geta lesið sér heilmikið til á netinu um það hvernig á að standa að þessu og síðan aflað sér reynslu og þekkingar með tíð og tíma.“ Stærri tæki varasöm Hann segir þó geta verið heilmikla kúnst að klippa tré. „Amatörar geta alveg spreytt sig og prófað venjuleg áhöld og klippur en ég myndi ekki ráðleggja að menn fari að nota stærri tæki, vélsagir eða mótorsagir án þess að vera búnir að kynna sér þær mjög vel og helst fara á námskeið. Slík tæki geta verið stórhættuleg en allar svona handklippur og slíkt getur almenningur notað.“ En er hægt að ráðast í garðvinnu í tíðinni sem er núna? „Það er kannski erfitt norðanlands eftir þessa miklu snjókomu að menn séu að glugga í garða eða trjágróður þegar allt er fullt af snjó en hér suðvestan lands er þetta fínn tími.“
Go to News Site