Enginn grunnskóli á Raufarhöfn næsta vetur
Fréttastofa RÚV

Enginn grunnskóli á Raufarhöfn næsta vetur

„Við hörmum stöðuna sem er komin upp í skólamálunum núna. Það er mjög slæmt þegar að byggðarlag er hvorki að bjóða upp á grunn- eða leikskólaþjónustu,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings. Það stefnir í að aðeins tvö börn verði á grunnskólaaldri á Raufarhöfn á næsta skólaári og þau þurfa að fara um sextíu kílómetra leið í grunnskólann í Öxarfirði. Raufarhöfn var fyrsta verkefni Brotthættra byggða á vegum Byggðastofnunar og hófst árið 2012. Ekki hefur gengið nægilega vel að snúa við byggðaþróun. „Við höfum ekki haft erindi sem erfiði í baráttunni fyrir auknum kvóta. Ríkið eða Byggðastofnun hefur komið að með verkefni sem eru tengd brothættum byggðum og slíkt verkefni er í gangi núna. En það er bara dropi í hafið og það þarf miklu miklu stærri aðgerðir til þess að snúa við byggðaþróuninni á svæðinu,“ segir Katrín og óskar eftir frekari aðstoð frá ríkinu: „Það er alveg klárt að það er hægt að snúa þessu við en það þarf bara stærri aðkomu heldur en að Norðurþing eitt og sér, það snýr ekki við þeirri þróun sem er í gangi núna.“ 166 íbúar eru á Raufarhöfn en undanfarinn áratug hefur nemendafjöldi í skólanum sveiflast en þegar mest var voru 21 barn við skólann. Að sögn foreldra barna á Raufarhöfn er staðan þung og erfið, þó að skólinn á Öxarfirði sé mjög góður og hafi tekið vel á móti þeim. Þeir telja gríðarlega mikilvægt að tryggja öryggi í skólaakstrinum sem fram undan er, bæði með hálkuvörnum og snjómokstri. Í október var Grunnskóla Raufarhafnar lokað vegna skorts á starfsfólki, fyrst fram að jólum og svo út skólaárið. Tveir nemendur klára grunnskólagöngu í vor og þá standa tveir eftir og er ekki forsenda fyrir því að reka skóla með svo fáa nemendur.

Go to News Site