Fréttastofa RÚV
Haldið var upp á 70 ára afmæli Selfosskirkju í dag, pálmasunnudag, og því var sérstök hátíðarmessa í kirkjunni, þar sem biskup Íslands þjónaði fyrir altari. Hænsnabóndi kom færandi hendi í afmælið og færði biskupnum tólf egg úr íslenskum landnámshænum. Þá er rétt að geta þess að kirkjukór kirkjunnar fagnar líka 80 ára afmæli um þessar mundir. Kirkjan var vígð á pálmasunnudag 25. mars 1956 af Ásmundi Guðmundssyni biskupi en bygging hennar fór fram á árunum 1952 til 1956. Kirkjan var teiknuð af Bjarna Pálssyni, sem þá var byggingafulltrúi og síðar skólastjóri Iðnskólans á Selfossi, en byggingameistari var Guðmundur Sveinsson. Fyrsti sóknarprestur kirkjunnar var séra Sigurður Pálsson. Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, predikaði í hátíðarmessunni. „Ef að kirkjan væri manneskja þá væri hún að fara á eftirlaun en við eldumst með öðrum hætti í kirkjusögulegu samhengi þannig að kirkjan er rétt að byrja,“ segir Guðrún. Og það fer fram mikið og gott starf í kirkjunni eða hvað? „Já, það er mikið starf í Selfosskirkju og ég er ákaflega stolt af þessari kirkju og prestakallinu hér, hér er heldur betur líf og hér er heldur betur trúarlíf,” segir Guðrún alsæl. Sóknarprestur kirkjunnar segir afmælisdaginn hafa verið frábæran. „Þetta er dásamlegur dagur búinn að vera, hjartað er fullt af gleði og þakklæti. Þetta er flottur aldur, kirkjan komin á eftirlaun en hvergi hætt,” segir séra Guðbjörg Arnardóttir. Guðbjörg segir að þeim fjölgi og fjölgi sem sæki fjölbreytt starf kirkjunnar alla daga vikunnar. „Já, við höfum séð það og sérstaklega núna í mars þegar við vorum með extra krydd í öllum messum og lögðum áherslu á það, það var alveg ofsalega vel mætt,” segir Guðbjörg. Og hvað haldið þið, Ragnar hænsnabóndi í Brandshúsum í Flóahreppi mætti með eggjabakka í messuna og færði biskupi Íslands eggin tólf í bakkanum, sem biskup var alsæll með. Sérstök hátíðarmessa var í Selfosskirkju í dag, á pálmasunnudag, í tilefni af 70 ára afmæli kirkjunnar. Hænsnabóndi kom færandi hendi í afmælið með tólf egg úr íslenskum landnámshænum handa biskupi Íslands.
Go to News Site