Nýstofnuð hljómsveit sigraði Músíktilraunir | Collector
Nýstofnuð hljómsveit sigraði Músíktilraunir
Fréttastofa RÚV

Nýstofnuð hljómsveit sigraði Músíktilraunir

Hljómsveitin Falinn gjóður er sigurvegari Músíktilrauna 2026. Bandið, sem skipað er þremur tíundubekkingum, var stofnað rétt áður en skráningarfrestur rann út. Það samanstendur af þeim Aroni Elí Arnarssyni, söngvara og bassaleikara, Baldri Þórarinssyni hljómborðsleikara og Þorra Hrafnssyni á rafmagnsgítar. Þeir flugu í gegnum undanúrslitin. „Þá vorum við nokkurn veginn búnir að sanna okkur finnst mér,“ segir Aron Elí. Hafandi stofnað hljómsveitina fyrir stuttu stefndu þeir hvorki á, né áttu von á, að vinna. „Þegar 3. og 2. sæti, þegar það var tilkynnt, þá héldum við að þetta væri bara búið og vorum byrjaðir að plana að taka aftur þátt á næsta ári,“ segir Baldur. „En síðan allt í einu erum við bara í 1. sæti og ég hugsaði bara: Nei – nú eruð þið eitthvað að ruglast.“

Go to News Site