Collector
Vill helst ekki koma fram þar sem börnin hans eru ekki velkomin | Collector
Vill helst ekki koma fram þar sem börnin hans eru ekki velkomin
Fréttastofa RÚV

Vill helst ekki koma fram þar sem börnin hans eru ekki velkomin

Tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, eða Emmsjé Gauti, er einn reynslumesti og vinsælasti rappari landsins. Hann steig fyrst fram með breiðskífunni Bara ég árið 2011 og hefur síðan þá gefið út ótal smelli en hann gerir sér einnig grein fyrir mikilvægi þess að halda sér á jörðinni og væntingum í hófi. Gauti var gestur Júlíu Margrétar Einarsdóttur í þættinum Að morgni á Rás 2 og fór yfir ferilinn og sagði frá stórtónleikum í lok maí því stærsta plata hans, Vagg&Velta, á tíu ára afmæli. Vill ekki gera lítið úr fortíðinni Gauti segist hafa þroskast mikið sem tónlistarmaður, þá sérstaklega þegar kemur að textasmíðum. Þegar hann horfi til baka á plötuna Vagg&Velta finnist honum sumir textarnir vera frábærir á meðan aðrir séu hræðilegir. „Hvernig nennti ég að segja svona einfalda hluti sem þýða ekki neitt?“ Í dag fari hann mun meira á dýptina en áður og reyni að snerta við hlustendum sínum. „En maður má ekki gera lítið úr tímabilum. Ég get tekið dæmi um mjög einfaldan texta sem er samt merkilegur fyrir mig, það er lagið Strákarnir. Ég er ekki að segja neitt rosalega djúpa hluti en það var bara einhver tíðarandi sem endurspeglaðist nákvæmlega í gegnum það lag.“ Þetta sé lag sem lifi með ákveðnum aldurshópi en yngri hlustendur uppgötvi það ekki endilega, en önnur rati sífellt til nýrra hlustenda. Skuldar áhorfendur sínum að fara alla leið Á sviðinu reynir Gauti að gefa eins mikið af sér og hann getur, sama hvort hann er að spila fyrir fullum sal eða ekki. Hann hafi nefnilega eitt sinn séð Hjálma spila á sjómannadeginum í Grindavík þar sem var fámennt en þeir gáfu allt í framkomuna. „Ég hugsaði að ef þeir eru með þetta í gangi þá get ég alveg líka lent í því að það séu fáir. Þá ætla ég samt alltaf að gefa besta. Ef það mætir einn, auðvitað sökkar það að halda tónleika og það mætir bara einn, en það er samt eitt líf, ein manneskja, einn tími úr degi manneskju sem ákveður að koma og sjá mig af því að hana langar að gera það.“ „Þá finnst mér ég skulda þeirri manneskju að ég fari gjörsamlega all in .“ Hann segist einnig verða að hafa gaman af því að koma fram. Hann sé búinn að vinna sem tónlistarmaður í fullu starfi í tíu ár og það komi vissulega dagar þar sem hann nenni ekki upp á svið. „En ég verð að halda í æskudraumana mína sem var bara að fá að flytja músík fyrir aðra.“ „Ég bara elska að koma fram.“ Hann vilji ekki gera lítið úr sér sem tónlistarmanni en hann líti fyrst og fremst á sig sem performer og síðan tónlistarmann. „Ég elska að gera það sem ég er að gera og elska að horfa á fólk njóta sín fyrir framan mig á meðan ég er að gera þessa hluti.“ Vill helst ekki spila þar sem fjölskyldan er ekki velkomin Verandi þriggja barna faðir tók Gauti ákvörðun um að reyna að skapa öruggt rými fyrir börnin sín að koma og vera með þegar hann fer að skemmta. „Auðvitað eru ekkert öll gigg fyrir börn. Ef fólk er að ráða mig inn í eitthvað brúðkaup þá er ég ekki að taka krakkana með, af virðingu við liðið og þeirra líf.“ „En ég vil helst ekki spila gigg þar sem börnin mín og fjölskyldan mín er ekki velkomin inn í það mengi.“ Hann segist þó ekki taka þau með á klúbbinn þegar hann sé að koma fram um miðjar nætur en þegar hann heldur sjálfur tónleika og ferðast um landið þá vill hann geta tekið þau með. Börnin hafa til að mynda komið á alla Julevenner-tónleikana hans, en hann sendi þau fram þegar eitthvað óviðeigandi fer fram á sviðinu. „Á einhverjum tímapunkti var maður að lifa tvöföldu lífi: skemmtikrafturinn og síðan fjölskyldufaðirinn. En ef ég ætla að gera þetta svo lengi sem fólk nennir mér, þá verð ég að sameina þetta að einhverju leyti.“ Venjulegur gaur sem fer út með ruslið daginn eftir stórtónleika Skemmtanabransinn fer misvel með fólk og Gauti segist mjög meðvitaður um að hann verði að halda sér á jörðinni. Þegar hann komi fram þá trekki hann upp egóið, sérstaklega þegar hátt í sex þúsund manns séu að koma og horfa á hann. „Síðan kemur maður heim og það eru bara allir sofandi og þú fattar að þú ert bara venjulegur gaur á morgun og þarft að fara út með ruslið.“ „Þá myndast einhver þynnkutómleikatilfinning en maður verður að stilla sig af og halda sér á jörðinni til að maður missi ekki vitið.“ Hann hafi fundið fyrir því á eigin skinni hve skaðlegt það geti verið að vera sífellt að mæta í aðstæður þar sem honum sé tekið fagnandi og verði að minna sig á að þær séu tilbúnar og finna jafnvægið á milli þess að fara út og skemmta og halda heimili. Oft fylgir því að rappa að upphefja sjálfan sig en Gauti hefur verið mjög einlægur og sagt frá því þegar hlutirnir fari ekki eins og hann hefði viljað, eins og þegar illa selst á tónleika eða nýútgefin lög fá litla hlustun. „Ég held að fólk finni fyrir því ef ég fer að bulla í því. Þetta er bara eins og allt annað, stundum er maður uppi og stundum er maður bara niðri. Stundum selur maður upp gigg og stundum selur maður sjö miða.“ Það hafi hjálpað honum í gegnum tíðina að horfa á sínar eigin hetjur ganga í gegnum alls konar tímabil, heyra sögur þeirra af bransanum og læra af þeirra mistökum. „Í dag reyni ég að búast ekki við neinu.“ Auðvitað langi hann alltaf að vera í fyrsta sæti og að allir myndu syngja með hverju einasta lagi sem hann gefur út. „En þannig virkar það allavega ekki fyrir mig.“ Að fá eina stjörnu var besta auglýsingin Á hverju ári heldur Gauti tónleikana Julevenner þar sem hann fær til sín góða gesti og reynir að vera með eitthvert grín sem mótsvar við hinum hefðbundnu jólatónleikum. Í fyrra skrifaði tónlistargagnrýnandinn Jónas Sen um tónleikana og gaf þeim eina stjörnu og kallaði þá „helvíti á jörðu“. Gauti tók það þó ekki inn á sig og segir það hafa verið gæfuspor. Eiginkona hans, Jovana Schally, hafði vakið hann um morguninn þung í bragði og sagt honum að það væri kominn dómur. Hann leit á símann sinn og sá rúmlega 50 skilaboð frá vinum og vandamönnum og varð alveg gáttaður. „Síðan byrja ég að lesa þetta og verð bara glaðari og glaðari og glaðari með hverju orðinu sem ég les. Það hefði verið verst að fá tvær og hálfa stjörnu.“ Hann segir það í raun draum sinn að einhver sem skilji ekki hugmyndina á bak við Julevenner, sem hófst árið 2017 og hefur þróast út í „alls konar kjaftæði“, mæti á tónleika og dæmi þá. „Jónas hefur greinilega ekki kynnt sér þetta neitt.“ „En ég verð að gefa honum eitt, mér finnst hann skemmtilegur penni og fyndinn fýlukarl.“ Strax í kjölfarið seldust upp 300 miðar á næstu tónleika. „Hann má fá frítt á Julevenner að eilífu, hvort sem hann nýtir sér það eða ekki. Þetta var ein besta auglýsingin.“ Getur ekki skrifað um lífið ef hann lifir ekki lífinu Þann 30. maí heldur Gauti upp á 10 ára afmæli plötunnar Vagg&Velta með stórtónleikum í Gamla Bíói. Hann fær til sín góða gesti og spilar alla plötuna en tekur einnig aðra slagara. „Þetta er eitt af þessum giggum þar sem ég tek bara peninginn sem ég fæ fyrir giggið og eyði honum í sjóið. Bókarinn minn, umboðsmaðurinn minn, fær í magann þegar ég segi honum þetta. En fyrir mig og fólkið þá er þetta bara uppskera, ég græði á einhverjum öðrum giggum.“ Ferill hans eigi þessari plötu margt að þakka og því vilji hann heiðra hana með flottum tónleikum. Gauti er búinn að bóka sig víða í sumar en ætlar aðallega að slaka á og ferðast til Serbíu með fjölskyldunni sinni. Hann gefur út eitt lag í mánuðinum ásamt KK en þess fyrir utan er hann ekki að vinna í neinu. „Ég er að leyfa mér aðeins að lifa. Ef ég lifi ekki lífinu þá get ég ekki skrifað um lífið. Til hvers að búa sér til einhvers konar veldi ef maður ætlar síðan ekki að stoppa þar og setjast niður í því,“ segir hann og á við um fjölskylduna sína. „Kaupið samt líka ógeðslega mikið af miðum, það er erfitt að halda þessu uppi.“ Gauti Þeyr, eða Emmsjé Gauti, segist á tímabili hafa lifað tvöföldu lífi skemmtarans og fjölskylduföðursins. Hann þurfi að geta sameinað þessa tvo heima að einhverju leyti til að geta haldið áfram í bransa sem fari misvel með fólk. Rætt var við Gauta Þey Másson í Að morgni á Rás 2. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Go to News Site