Collector
Birgitta mætti með nýja Þjóðhátíðarlagið í Morgunútvarpið á Rás 2 | Collector
Birgitta mætti með nýja Þjóðhátíðarlagið í Morgunútvarpið á Rás 2
Fréttastofa RÚV

Birgitta mætti með nýja Þjóðhátíðarlagið í Morgunútvarpið á Rás 2

„Þetta var svo lærdómsríkt fyrir mig því við vinnum tónlist mjög ólíkt,“ segir Birgitta Haukdal í Morgunútvarpinu á Rás 2 um samstarfið við Herra Hnetusmjör. Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör flytja Þjóðhátíðarlagið í ár en þau sömdu lagið og textann ásamt framleiðandanum Þormóði Eiríkssyni. Lagið heitir Flugeldar og þú getur hlustað á það í spilaranum hér fyrir ofan. „Þetta er mikill heiður og það eru búin að vera mörg fiðrildi í maganum síðustu mánuði,“ segir Birgitta. „Ég vona að maður standi sig og nefndin og Eyjamenn verði sáttir. Ég krossa fingur. Það sem ég veit er að ég, Árni og Þormóður erum ótrúlega sátt. Okkur finnst þetta geggjað og svo vonum við að við séum ekki skrítna tríóið; þau einu sem fíla þetta.“

Go to News Site