Fréttastofa RÚV
Tuchel valdi 26 leikmenn fyrir mótið. Hann taldi ekki pláss vera fyrir leikmenn á borð við Phil Foden, Cole Palmer, Trent Alexander-Arnold, Morgan Gibbs-White, Luke Shaw og Harry Maguire. Enska knattspyrnusambandið birti þetta myndband með kynningu liðsins: Gríðarsterkur og reyndur hópur Enska liðið er gríðarlega vel mannað, sem kannski sést best á þeim leikmönnum sem ekki komast í liðið. Jordan Pickford er þrautreyndur markvörður sem hefur átt góða leiktíð með Everton. Varnarlega eru kannski spurningamerki og ákvörðunin að skilja Maguire eftir gæti orðið dýrkeypt. Í hópnum eru þó mjög öflugir varnarmenn á borð við Marc Guehi, John Stones, Ezri Konza, Reece James og Nico O'Reilly. Á miðjunni munu Declan Rice og Jude Bellingham eiga að bera hlutina uppi. Ungstirnið Elliot Anderson gæti fengið hlutverk sömuleiðis. Í fremstu víglínu er svo fyrirliðinn Harry Kane. Honum til aðstoðar menn á borð við Bukayo Saka, Anthony Gordon, Eberechi Eze og Markus Rashford. Ivan Toney var svo nokkuð óvænt valinn, en hann spilar með Al-Ahli í Sádí-Arabíu. Noni Madueke var líka aðeins óvænt því hann hefur ekki spilað stórt hlutverk í liði Arsenal í vetur. Ballið byrjar hjá enska liðinu 17. júní þegar það mætir Króatíu áður en England tekst á við Gana og Panama. Leikir Englands á HM: júní kl. 20 gegn Króatíu - beint á RÚV 2 23. júní kl. 20 gegn Gana - beint á RÚV 2 27. júní kl. 21 gegn Panama - beint á RÚV RÚV sýnir alla leiki HM beint á RÚV og RÚV 2 auk daglegra samantektarþátta. Dagskrá HM má nálgast hér: Leikjadagskrá HM á rásum RÚV
Go to News Site