Fréttastofa RÚV
Guardiola, sem er 55 ára gamall, tók við stjórnartaumunum hjá Manchester City fyrir 10 árum síðan. Á þeim tíma hefur hann stýrt liðinu til sigurs í 17 keppnum og 6 sinnum unnið ensku úrvalsdeildina. Vorið 2024 var líklega það besta undir hans stjórn en City vann þá þrennuna; ensku úrvalsdeildina, enska bikarinn og Meistaradeildina. Síðustu tvö ár hefur liðið ekki náð að landa enska meistaratitlinum og jafntefli gegn Bournemouth á þriðjudaginn var gerði út um titilvonir liðsins í ár. Þrátt fyrir það kveður Guardiola með tveimur titlum því City er bæði bikar- og deildarbikarmeistari. * Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð
Go to News Site