Collector
Fimm krúttleg og hressandi indílög á föstudegi | Collector
Fimm krúttleg og hressandi indílög á föstudegi
Fréttastofa RÚV

Fimm krúttleg og hressandi indílög á föstudegi

Aldous Harding, H. Hawkline – Venus in the Zinnia Lagið Vensu in the Zinnia er á fimmtu hljóðversplötu nýsjálensku skrítnipoppstjörnunar Aldous Harding. Platan kom út 8. maí og fær frábæra dóma í popppressunni og er sem stendur með 87/100 á Metacritic sem lofar góðu. The Strokes – Falling out of Love Frá Nýja-Sjálandi liggur leiðin til New York þar sem við hittum fyrir eilífðartöffarana í The Strokes sem eru að nostra við ræturnar. Lag þeirra Going Shopping hefur verið að slá í gegn og þá er tímabært að senda út annað sem er vangalagið Falling out of Love. Lögin eru bæði á væntanlegri sjöundu plötu sveitarinnar sem er pródúseruð af meistara Rick Rubin og kemur í lok júní. Rostam – Back of a Truck Tónlistarmaðurinn og framleiðandinn Rostam (Batmanglij) er einn af stofnendum Vampire Weekend og hefur pródúserað býsna stór nöfn í poppinu meðal annars Charli xcx, Haim og Frank Ocean. Hans nýjasta lag er Back of a Truck sem er tekið af væntanlegri þriðju sólóplötu hans American Stories. Lucy Dacus – Planting Tomatoes Tónlistarkonan Lucy Dacus er með græna fingur í laginu Planting Tomatoes sem er svona frekar lúmskur slagari sem vinnur á með hverri hlustun. Lagið var upphaflega tekið upp fyrir Record Store Day en hefur náð athygli eftir að það datt á streymisveitur í síðasta mánuði. Fat Dog – Go Fuck Urself Frá London koma síðan partístrákarnir í Fat Dog sem spiluðu fyrir okkur á Íslandi á síðasta Airwaves festivali. Þeirra nýjasta lag er dónavísan Go Fuck Urself þar sem þeir blanda saman raftónlist og rokki í baneitraðan en hressandi kokteil. Lagalistinn

Go to News Site