Collector
Mögulega komið að endalokum Eurovision: „Þetta er svindl“ | Collector
Mögulega komið að endalokum Eurovision: „Þetta er svindl“
Fréttastofa RÚV

Mögulega komið að endalokum Eurovision: „Þetta er svindl“

Annaðhvort er Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, komin að endalokum eða hún skiptir um ham. Þetta segir Páll Óskar Hjálmtýsson í þriðja þætti Pólitískra vindvéla Evrópu á Rás 1. Keppnin sé samtímaspegill en nú sé komið að vatnaskilum. Nýlega birti fjölmiðillinn New York Times mikla úttekt á framgöngu Ísraels í keppninni á síðustu árum, frá því innrás þeirra hófst á Gaza sem hefndaraðgerð eftir hryðjuverk Hamas. Í úttekt blaðsins kemur fram að hin herskáa ríkisstjórn Ísraels óttaðist svo mikið að óvinsældir Ísraels kæmu í ljós að stjórnin hefur eytt, að því er talið, hundruðum milljóna í að hvetja gyðinga víða um heim og annað stuðningsfólk Ísraels til að kjósa atriðin sín eins oft og leyfilegt er. Ísraelar fóru af stað með mikla auglýsingaherferð í aðdraganda Eurovision til að tryggja sér sem flest atkvæði. Ljóst er að viðhorf áhorfenda til keppninnar er breytt og komið að vatnaskilum. Misnota fallega hugmyndafræði Eurovision Ríkisstjórn Ísraels, undir stjórn Netanyahus, sannfærðist um að þetta væri góð fjárfesting. Í þeirra augum varð Eurovision ekki hátíð fjölbreytileikans, glimmers og flugelda heldur sáu þeir sér leik á borði í að láta virðast sem svo að Evrópubúar stæðu með Ísrael. Þótt EBU, samband evrópskra sjónvarpsstöðva, sé tregt til að taka á málum Ísraels hafa þau sagt að framganga þeirra sé ekki í anda keppninnar og bannað slíkar aðgerðir. Hugmyndin á bak við Eurovision hafi í upphafi verið mjög falleg að mati Páls Óskars. „Að byggja, búa til brýr. Nú hefur þetta sama konsept, þessi stökkpallur, verið misnotaður hreinlega af ákveðnum öflum sem brjóta reglurnar líka með því að splæsa í auglýsingar á Times Square í New York.“ Það sé skýrt kveðið á um það í lögum keppninnar hjá EBU að ríkisstjórnir keppnislanda megi ekki skipta sér af framlaginu. „Svo eru risaauglýsingar á Times Square um ísraelska lagið og verið er að hvetja fólk í Ameríku til að kjósa þetta lag á ákveðnum tíma í gegnum símann eða internetið. Hver borgar þessar auglýsingar? Sjónvarpsstöðin KAN? Nei, þetta er klárt brot og samt fær þessi ákveðna keppnisþjóð að tuddast áfram í keppninni. Þetta er svindl.“ Lögðu sérstaka áherslu á að kjósa 20 sinnum Fyrir keppnina 2025 fór Ísrael af stað með stóra auglýsingaherferð til að hvetja fólk, og aðallega gyðinga og stuðningsmenn Ísraels, til þess að kjósa landið tuttugu sinnum, með mikilli áherslu á fjöldann. Rannsóknir New York Times leiddu í ljós að skrifstofa forsætisráðherra, Benjamíns Netanyahus, hafði varið í það minnsta einni milljón bandaríkjadala í herferðina og keypt auglýsingar á Youtube fyrir keppnina þannig að öll þau sem skoðuðu eitthvað tengt Eurovision fengu auglýsingar upp á skjáinn um að þau ættu að standa með Ísrael og kjósa framlag þeirra tuttugu sinnum. Herferðin var greidd af ríkisstjórn Ísraels. Gott gengi landsins skipti ríkisstjórn Netanyahus miklu máli. Nokkrum mínútum áður en keppandi Ísraels, Yuval Raphael, fór á svið setti forsætisráðherrann færslu á Instagram-síðu sína, þar sem hann er með eina og hálfa milljón fylgjenda, og sagði: „Kjósið lag númer 4, Nýr dagur mun rísa. Kjósið tuttugu sinnum.“ Þessi póstur var hluti af herferðinni fyrir því að ísraelska laginu myndi ganga sem best. Og það tókst því Ísrael fékk flest atkvæði allra í símakosningunni í fyrra. Ísrael, landið sjálft, deildi einnig tíu færslum daginn sem úrslitakeppnin fór fram til að minna fólk á að kjósa alveg örugglega tuttugu sinnum. Engin önnur þjóð gerði þetta. Þurfti aðeins nokkur hundruð atkvæði til að skekkja niðurstöðurnar Blaðamaður New York Times ræddi við Norðmann og Þjóðverja sem eru hvor í sínu landinu í forsvari fyrir vinasamtök við Ísraelsríki og sögðust báðir hafa verið í hörku kosningabaráttu fyrir lag Ísraels og að þeir hefðu safnað hundruðum þúsunda atkvæða. Engar sannanir eru fyrir því að Ísraelar hafi svindlað á kosningakerfinu með gerviatkvæðum líkt og margan hefur grunað. Hins vegar sýna kosningatölur að í löndum þar sem landið hlaut flest atkvæði, sérstaklega í löndum þar sem mikla andstöðu gegn Ísrael er að finna, hafi aðeins þurft nokkur hundruð atkvæði til hífa Ísrael á topp atkvæðagreiðslunnar. Sýnir hve áhrifarík keppnin er Þessi auglýsingaherferð var eitt af því sem EBU sagðist ætla að stöðva fyrir keppnina í ár og ein af þeim aðgerðum sem settar voru fram til að koma í veg fyrir frekari sniðgöngu keppninnar. Ísrael fylgdi þó ekki fyrirmælum og í vikunni fyrir keppnina í ár þurfti EBU enn á ný að áminna Ísrael um að bannað sé að ríkisstjórnir beiti sér fyrir vali sinna laga eftir mikla auglýsingaherferð um að Evrópubúar og aðrir kjósi Ísrael. Fyrir utan þetta hafa ísraelsk yfirvöld verið í miklum diplómatískum aðgerðum til að tryggja veru Ísraels í keppninni. Í grein New York Times kemur fram að ísraelskir diplómatar höfðu samband við Stefán Eiríksson útvarpsstjóra til að ræða málefni Eurovision, nokkuð sem Stefán leiddi í jörð. Þar að auki höfðu ísraelskir sendiherrar samband við yfirmenn ríkissjónvarpsstöðva í að minnsta kosti tveimur öðrum löndum og í einu tilviki tók sendiherra málið upp við utanríkisráðherra þjóðar. Svo virðist sem Ísraelar séu hræddir við að þeirra bíði sömu örlög og Rússa og að þeim verði vísað úr keppninni. Það hlýtur að segja sitt um afl Eurovision, sem ávallt hefur haldið því fram að keppnin sé ópólitísk, að þeir skuli berjast eins og ljón gegn því að það gerist ekki. Þess má þó geta að Rússlandi var vísað úr keppni árið 2022 á þeim forsendum að ríkisfjölmiðill þeirra þykir ekki óháður ríkisstjórninni en EBU telur að ekki sé um ritskoðun að ræða hjá KAN, ríkisfjölmiðli Ísraels. „Þegar einni keppnisþjóð er refsað, eins og Rússlandi, af EBU um leið og þeir ráðast inn í Úkraínu en ekki Ísrael, þá er keppnin sjálf og EBU, partíhólderinn sjálfur, farin að senda tvöföld skilaboð,“ segir Páll Óskar. Fjallað er um sögu Eurovision og pólitíkina sem alltaf hefur sett sinn brag á keppnina í þáttunum Pólitískar vindvélar Evrópu á Rás 1.

Go to News Site