Collector
Breiðablik lagði KR í ótrúlegum markaleik | Collector
Breiðablik lagði KR í ótrúlegum markaleik
Fréttastofa RÚV

Breiðablik lagði KR í ótrúlegum markaleik

Áttundu umferð Bestu deildar karla lýkur í kvöld með fimm leikjum. Þar af er tveimur lokið og þar voru það Akureyrarliðin sem biðu lægri hlut. Breiðablik og KR áttust við á Kópavogsvelli og þar vantaði ekki mörkin. Þrátt fyrir að Vesturbæingar hafi haldið boltanum umtalsvert lengur voru það Blikar sem höfðu betur í markaleik 6-3. Fyrri hálfleikur var ansi líflegur og markareikningurinn opnaðist strax á 2. mínútu með marki frá Kristófer Inga Kristinssyni fyrir Blika. Það stóð ekki á markaskorun því í hálfleik var staðan orðin 4-2 fyrir Breiðablik. Enn áttu liðin eftir að skora því Ívar Örn Árnason og Kristófer Ingi bættu við fyrir Blika og Amin Cosic skoraði úr víti fyrir KR. Lokatölur í 6-3 fyrir Blika. Þá tryggði Róbert Hauksson Framörum sigur á móti Stjörnunni með marki á 71. mínútu leiksins. Stórsigur Víkinga Víkingur vann stórsigur á FH, 5-0. Gunnar Vatnhamar, Gylfi Þór Sigurðsson, Sverrir Páll Hjaltason og Daníel Hafsteinsson skoruðu hver sitt markið fyrir Víkinga og þá skoraði Elías Már Ómarsson skoraði tvennu. Sigur Víkings og tap KR-inga færir Víkingum þriggja stiga forskot í deildinni. Liðið er nú á toppnum með 21 stig. Keflavík og Valur sigruðu Akureyrarliðin Keflavík tók á móti Þór og þar tóku Keflvíkingar þrjú stig. Eitt mark var skorað í leiknum og það kom snemma. Marin Brigic kom heimamönnum yfir á 6. mínútu og liðið hélt þeirri forystu allt til loka leiksins. Keflavík er nú með 11 stig. Þá mættust KA og Valur fyrir norðan og þar náðu gestirnir sigrinum. Sömu sögu var að segja í þessum leik, aðeins eitt mark. Það skoraði Abin Skoglund fyrir Valsara á 41. mínútu. Valsarar tryggðu þar með sitt fimmtánda stig.

Go to News Site