Fréttastofa RÚV
Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni. Síðast er vitað af honum við KFC í Mosfellsbæ um klukkan 18 í dag.Facebook / Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni. Síðast sást til Arnórs við KFC í Mosfellsbæ um klukkan 18 í dag. Samkvæmt tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Facebook er Arnór 37 ára, með ljóst, þunnt hár, í kringum 175 cm á hæð og meðalmaður í vexti. Hann er klæddur í dökkbláa þunna úlpu, dökkbláar gallabuxur og svarta strigaskó. Líklegt sé að hann sé gangandi og hann geti verið á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesskaga og á svæðinu að og á Akranesi. Þeir sem hafa vitneskju um ferðir Arnórs eru beðnir um að hafa samband strax við lögreglu í síma 112.
Go to News Site