Collector
Grunnskóli Húnaþings vestra sigraði í Skólahreysti | Collector
Grunnskóli Húnaþings vestra sigraði í Skólahreysti
Fréttastofa RÚV

Grunnskóli Húnaþings vestra sigraði í Skólahreysti

Grunnskóli Húnaþings vestra stóð uppi sem sigurvegari með 60 stig í úrslitakeppninni í Skólahreysti sem fram fór í íþróttahöllinni að Varmá í kvöld. Laugalækjarskóli endaði í öðru sæti og Víðistaðaskóli hafnaði í því þriðja, en skólarnir skildu jafnir með 54 stig hvor. Keppt var í upphífingum, armbeygjum, dýfum, hreystigreip og hraðaþraut. Keppt var í upphífingum, armbeygjum, dýfum, hreystigreip og hraðaþraut. Sigurliðið var skipað Hafþóri Inga Sigurðssyni sem keppti í upphífingum og dýfum, Jóhönnu Guðrúnu Jóhannsdóttur sem keppti í armbeygjum, Ingu Lenu Apel Ingadóttur sem keppti í hreystigreip og Guðna Þór Alfreðssyni í hraðaþraut en Guðni stökk inn sem varamaður fyrir Helga Frey Guðmundsson sem meiddist í upphitun. Saga Björgvinsdóttir, nemandi í Grunnskólanum á Ísafirði, sigraði hreystigreipina eftir að hafa hangið í 26 mínútur og 31 sekúndu. Það er næstbesti árangur í sögu Skólahreysti. Saga á sjálf Íslandsmetið í greininni, sem hún setti í undanriðli fyrr í mánuðinum þegar hún hékk í 30 mínútur og 9 sekúndur. Dagbjört Lilja Oddsdóttir, nemandi í Lágafellsskóla, reyndist henni harður keppinautur og þær héngu lengst allra stúlkna á slánni í hreystigreip. Alls komust 12 grunnskólar í úrslit Skólahreysti í ár. Auk þeirra þriggja sem komust á verðlaunapall kepptu lið frá Heiðarskóla, Áslandsskóla, Egilsstaðaskóla, Árbæjarskóla, Grunnskólanum á Ísafirði, Setbergsskóla, Lágafellsskóla, Álfhólsskóla og Garðaskóla.

Go to News Site