Fréttastofa RÚV
Íslandsmótið í hópfimleikum var síðustu helgi og um leið lauk keppnistímabilinu hér á Íslandi. Í október er hins vegar Evrópumót og undirbúningur fyrir það hefst nú strax í júní. Ísland á titil að verja í kvennaflokki. Evrópumótið er haldið á tveggja ára fresti og Ísland vann sinn fjórða Evrópumeistaratitil í kvennaflokki í Baku í Aserbaísjan fyrir tveimur árum. Þá var Andrea Sif Pétursdóttir á meðal keppenda en hún verður í hlutverki landsliðsþjálfara í haust. Innslag um valið og mótið má sjá hér að neðan. Íslensku landsliðin í hópfimleikum undirbúa sig nú af kappi fyrir Evrópumótið. Kvennaliðið er ríkjandi meistari og hefur alls unnið fjórum sinnum. Landsliðsþjálfararnir segja afar strembið að velja hópinn. „Það er eiginlega meira stressandi að vera á hliðarlínunni heldur en að vera að keppa sjálfur. En það er bara góð tilbreyting að vera á þessum stað, en maður samt ennþá með,“ segir Andrea. Erfitt að velja hópinn Stefnt er að því að tilkynna landsliðshópana 1. júní og þjálfararnir eru sammála um að það sé strembið verkefni að velja þá. „Að velja í 16 manna hóp er erfitt. Að velja tólf sem fara út verður erfiðara. Að velja svo tíu sem fara inn á gólfið er ennþá erfiðara. Hausverkurinn verður mikill en við erum búin að kvitta undir að vera með þetta verkefni,“ sagði Kristinn Þór Guðlaugsson. „Við erum með ótrúlega marga sterka iðkendur á Íslandi, sem er mikið fagnaðarefni. En við þurfum að skoða sterkustu hliðarnar hjá öllum. Við erum með myndbönd til að taka alls konar ákvarðanir. Þetta verður erfitt en þetta verður mjög skemmtilegt,“ sagði Andrea. Ætla að verja titilinn Ísland hefur einnig unnið til verðlauna í karlaflokki sem og flokki blandaðra liða. Stefnan í ár er að senda allavega lið í aðra hvora keppnina. „Það er alltaf þannig að við ætlum að verja titilinn. Við förum alltaf með það hugarfar inn í mótið,“ sagði Andrea. Evrópumótið verður í Espoo í Finnlandi og því styttra fyrir íslenskt stuðningsfólk að fara heldur en síðast.
Go to News Site