Collector
Rubio vonast eftir góðum fréttum í dag | Collector
Rubio vonast eftir góðum fréttum í dag
Fréttastofa RÚV

Rubio vonast eftir góðum fréttum í dag

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir hugsanlegt að í dag verði tilkynnt um endalok stríðsins milli Bandaríkjanna og Írans. „Ég held að það sé kannski möguleiki á því á næstu klukkustundum að heimsbyggðin fái góðar fréttir,“ sagði Rubio þegar hann ræddi við fréttamenn í Nýju Delí á Indlandi. Hann sagði að í samningi yrði tekið á siglingum um Hormús-sund og kjarnorkuvopnaþróun Írana. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði því að árangur virtist vera að nást í friðarviðræðum Írana og Bandaríkjamanna. Hann sagði að í framhaldinu yrði reynt að tryggja frið til langrar framtíðar. Eldsneytisverð hefur hækkað mikið á heimsvísu vegna stríðsins við Persaflóa.EPA / JIM LO SCALZO

Go to News Site