Collector
Sekur um að hafa brotið á barni á Múlaborg | Collector
Sekur um að hafa brotið á barni á Múlaborg
Fréttastofa RÚV

Sekur um að hafa brotið á barni á Múlaborg

Maður sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Brotin sem maðurinn var ákærður fyrir geta varðað tíu ára fangelsi eða meira. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur féll í gær en hefur ekki verið birtur og þess vegna liggja forsendur hans ekki fyrir. Þinghald í málinu var lokað. Samkvæmt heimildum fréttastofu var maðurinn fundinn sekur í öðrum af tveimur ákæruliðum. Var ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot Maðurinn er á þrítugsaldri og starfaði á leikskólanum í tæplega tvö ár. Hann var ákærður fyrir að hafa tvisvar sinnum brotið kynferðislega gegn stúlku á leikskólanum á síðasta ári. Hann hafi misnotað yfirburðarstöðu sína gagnvart barninu, brugðist trausti þess og trúnaði sem starfsmaður leikskólans. Þá hafi hann í annað skiptið notfært sé að barnið hafi verið ófært um að sporna við verknaðinum sökum svefndrunga. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í ágúst 2025 eftir að foreldrar barnsins höfðu samband við lögreglu. Samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði í nóvember játaði hann tvö brot og þóttu lýsingar hans samrýmast framburði barnsins og öðrum gögnum. Mál 17 barna tekin til skoðunar hjá lögreglu Mál sautján barna á leikskólanum voru tekin til skoðunar hjá lögreglu eftir handtökuna. Foreldrar þrettán þessara barna kærðu manninn fyrir meint brot gegn börnum sínum. Rannsókn tíu þeirra var hætt en þrjú voru send til héraðssaksóknara. Ákæra var gefin út í þessu eina máli. Fréttin verður uppfærð.

Go to News Site