Fréttastofa RÚV
Starfsmaður bensínstöðvar í Moskvu fyllir á tankinn fyrir viðskiptavin.EPA / Yuri Kochetkov Stjórnvöld í Rússlandi hafa viðurkennt að eldsneytisskortur hafi gert vart við sig í nokkrum héruðum í suðurhluta landsins. Drónaárásir Úkraínuhers á olíuinnviði í Rússlandi eru sagðar skýra það. Fréttaveitan NTB greinir frá . Orkumálaráðuneytið í Rússlandi hefur skipað viðbragðshóp sem ætlað er að finna lausn á vandamálinu. Til að tryggja nægar eldsneytisbirgðir í landinu hafa yfirvöld innleitt ýmsar hömlur á borð við útflutningsbann á steinolíu.
Go to News Site