Collector
Giriş Yap
Kjarnorkuríki heims hafa aldrei varið eins miklu fé í kjarnorkuvopn og í fyrra | Collector
Kjarnorkuríki heims hafa aldrei varið eins miklu fé í kjarnorkuvopn og í fyrra

Kjarnorkuríki heims hafa aldrei varið eins miklu fé í kjarnorkuvopn og í fyrra

Þau níu ríki heims sem búa yfir kjarnorkuvopnum vörðu 119 milljörðum dala í slík vopn í fyrra. Það eru nærri 15 þúsund milljarðar króna. Á milli ára jukust útgjöldin um 17 milljarða dala, rúmlega 2.000 milljarða króna, og hafa aldrei verið meiri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá ICAN. Það eru samtök sem berjast gegn kjarnorkuvopnum. Þau hlutu friðarverðlaun Nóbels 2017. Skýrsluhöfundur segist „skelfingu lostin“ Susi Snyder, meðhöfundur skýrslunnar, segir þetta áhyggjuefni. Því til viðbótar hafa skýrsluhöfundar varað við því að notkun gervigreindar geti aukið hættuna á því að kjarnorkuvopnum verði beitt. „Ef ég á að vera alveg hreinskilin, þá er ég skelfingu lostin,“ segir Snyder við AFP-fréttaveituna. Skýrsluhöfundar vara við því að nýtt kjarnorkukapphlaup sé runnið upp. Útgjöld jukust hjá öllum ríkjunum níu Öll kjarnorkuríkin níu vörðu meira fé í kjarnorkuvopn í fyrra en árið á undan. Þetta eru Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Indland, Ísrael, Kína, Norður-Kórea, Pakistan og Rússland. Bandaríkin eyddu mestu í kjarnorkuvopn, og raunar meira en öll hin ríkin til samans, eða rúmlega 69 milljörðum dala, rúmlega 8.600 milljörðum króna. Það er rúmlega fimmtungsaukning á milli ára. „Féð sem þessi ríki vörðu í kjarnorkuvopn árið 2025 hefði getað kostað starfsemi Sameinuðu þjóðanna í 32 ár,“ segir Snyder. Hún bætir því við að útgjöldin fyrir hvern dag á síðasta ári hefðu nægt til að tryggja fæðuöryggi yfir tveggja milljóna manna.

Go to News Site