Fréttastofa RÚV
Körfuboltaaðdáendur bauluðu á Donald Trump Bandaríkjaforseta í Madison Square Garden í nótt. Honum brá fyrir á stórum skjá þegar þjóðsöngur Bandaríkjanna var sunginn fyrir leik New York Knicks og San Antonio Spurs. Þetta var þriðji leikur liðanna í úrslitaeinvígi þeirra um NBA titilinn. Fréttamiðlar á borð við BBC , New York Times og CNN segja frá baulinu. Trump er fyrsti sitjandi forseti Bandaríkjanna til að vera við úrslitakeppnina. Miðahafar þurftu að bíða klukkustundum saman í röð til þess að komast inn á leikvanginn. Það var vegna mikilla öryggisráðstafana sem fylgdu heimsókn forsetans.
Go to News Site