Collector
Giriş Yap
Í kvöld: Ísland tekur á móti heimsmeisturunum | Collector
Í kvöld: Ísland tekur á móti heimsmeisturunum

Í kvöld: Ísland tekur á móti heimsmeisturunum

Það er komið að lokaleik Íslands í riðlahluta undankeppni HM kvenna í fótbolta. Liðið fær ríkjandi heimsmeistara Spánar í heimsókn á Laugardalsvöll í leik sem hefst klukkan 19:00 og verður í beinni útsendingu á RÚV og RÚV 2. 18:20 Stofan hitar upp (RÚV 2) 19:00 Ísland - Spánn (RÚV og RÚV 2) Ísland hefur í raun að litlu að keppa út frá stöðunni í riðlinum; liðið er í þriðja sæti með 6 stig og mun enda í þriðja sæti þar sem Úkraína getur ekki náð því og Ísland getur ekki náð Spáni né Englandi sem eru bæði með 12 stig. Hvert stig getur þó hjálpað í komandi umspili sem og til að vinna sig upp heimslistann. Þar fyrir utan er stoltið undir og íslensk landslið eru ekki vön því að gefa andstæðingum auðvelda leiki á heimavelli. Hægt er að kaupa miða á miðasöluvef KSÍ. 20% af miðaverðinu rennur til þess félags sem valið er, sé þess óskað. Leikurinn hefur hins vegar gríðarmikla þýðingu fyrir Spán sem vinnur riðilinn með sigri og kemst þannig beint inn á HM í Brasilíu á næsta ári. Ef það tekst ekki, og England vinnur Úkraínu, fer Spánn sömu leið og Ísland í umspil.

Go to News Site