Fréttastofa RÚV
San Antonio Spurs vann þriðja úrslitaleik sinn við New York Knicks í úrslitum NBA deildarinnar í körfubolta, 115-111. Þar með minnkaði San Antonio muninn í úrslitarimmunni í 2-1, en vinna þarf fjóra leiki til að verða meistari. New York-liðið hafði unnið tvö fyrstu leikina á heimavelli San Antonio í Texas en leikir þrjú og fjögur eru spilaðir í New York og því hafa allir leikirnir þrír til þessa unnist á útivelli. Franska stórstjarnan Victor Wembanyama var öflugur hjá San Antonio í þessum þriðja leik og endaði stigahæstur með 32 stig. Hjá New York skoraði Jalen Brunson jafn mörg stig. Næst mætast liðin annað kvöld í Madison Square Garden í New York en fimmti leikurinn verður svo að kvöldi 13. júní í San Antonio.
Go to News Site