Fréttastofa RÚV
Volodymyr Zelensky segir að hann hafi átt „jákvæð samtöl“ við Steve Witkoff og Jared Kushner. Þeir eru stjórnarerindrekar Bandaríkjanna og hafa haft milligöngu um friðarviðræður Rússa og Úkraínumanna Í tilkynningu Zelenskys á Telegram frá því í gær hrósar hann þeim Witkoff og Kushner fyrir hve viljugir þeir eru til þess að vinna að friðarsamkomulagi. Um helgina fundaði Zelensky með þjóðarleiðtogum Bretlands, Frakklands og Þýskalands í London. Þar ræddu þeir um næstu skref í friðarviðræðum og aukinn stuðning við Úkraínu. Þeir Keir Starmer, Emmanuel Macron og Friedrich Merz voru sammála um að koma ætti á fundi milli Zelenskys og Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta til þess að þeir gætu rætt um vopnahlé milli ríkjanna. Stjórnvöld í Evrópu gætu komið þar að máli. Skilur að Íran sé í brennidepli Bandaríkjamanna Friðarviðræður milli Úkraínu og Rússlands, sem Bandaríkin hafa haft milligöngu um, hafa legið í dvala þar sem stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa einbeitt sér að stríðinu við Íran. Zelensky sagðist í gær skilja að Íran væri í brennidepli þessa stundina. Markmiðið um frið í Evrópu væri þó engu að síður á dagskrá. Rætt um mikilvægi vopnahlés í öryggisráði SÞ Bandarískir og úkraínskir embættismenn hafa rætt um mögulega heimsókn Witkoffs og Kushners til Kyiv, jafnvel á næstu vikum. Þetta hefur Reuters eftir heimildarmönnum . Það yrði fyrsta opinbera heimsókn þeirra til Úkraínu en þeir hafa áður heimsótt Moskvu til að ræða við þarlend yfirvöld. Stríð Rússa og Úkraínumanna var rætt á sérstökum fundi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær, þeim fimmta sem haldinn er um stríðið á 20 dögum. Þar ræddu fulltrúar frá Evrópusambandinu, Bandaríkjunum og Kína, meðal annarra, um mikilvægi þess að vopnahléi verði náð.
Go to News Site