Fréttastofa RÚV
Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér í gærkvöld þátttökurétt á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi með því að enda meðal fjögurra efstu í loka úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Við heyrðum í Ólafi Loftsson afreksstjóra Golfsambandsins í dag og báðum hann um að setja þetta íþróttaafrek í samhengi. „Þetta er risastórt. Þetta er einfaldlega sterkasta golfmót í heimi. Af risamótunum hvað styrkleika mótanna varðar, þá er þetta talið sterkasta risamótið. Þannig það er ekki hægt að fara lengra en inn á þetta mót,“ sagði Ólafur Loftsson afreksstjóri Golfsambands Íslands við RÚV í morgun. Kom afreksstjóranum ekkert á óvart Af risamótunum fjórum hjá karlkylfingum, Mastersmótinu, PGA meistaramótinu, Opna breska mótinu og Opna bandaríska er það síðast nefnda talið erfiðast. „Það eru yfirleitt erfiðastar aðstæður því vellirnir eru settir upp gífurlega erfiðir. Þannig að þetta er alveg gífurlegt afrek að komast þarna inn. En það sem er ótrúlegast kannski er að þetta kemur ekkert það mikið á óvart. Það var gríðarlega mikil innistæða fyrir þessu hjá honum,“ segir Ólafur um Gunnlaug og heldur áfram. „Þó hann sé einungis tvítugur er hann bara búinn að vera á þessari vegferð í það langan tíma núna og með gífurlega flott teymi á bak við sig. Mjög margir flottir einstaklingar sem hafa fylgt honum. En fyrst og fremst er þetta bara hans karakter og hans flotta vinna að vera að uppskera með þessum hætti,“ segir Ólafur Loftsson. Margir hefðu brotnað í þessum aðstæðum En hvernig var fyrir afreksstjóra Golfsambandsins að fylgjast með þessu úr fjarlægð frá Íslandi? „Auðvitað bara alveg svakalega taugatrekkjandi eins og hjá flestum. Maður veit líka hvað það er rosalega mikil samkeppni. Hann var að spila þarna á móti aðallega leikmönnum sem eru á PGA mótaröðinni, og mörgum þekktum kylfingum. Þannig það má mjög lítið út af bregða.“ Ólafur segir sérstaklega gaman að sjá hversu vel Gunnlaugur Árni höndlaði pressuna á loka úrtökumótinu í gær. „Hann fékk tvöfaldan skolla á tíundu holu á seinni hring. Ég held að margir áhugakylfingar í þessari stöðu hefðu brotnað við það. En hann svaraði bara með þremur fuglum á næstu fjórum holum og sýndi svo stáltaugar í bráðabananum. Maður getur nefnilega rétt ímyndað sér stressið í þessum aðstæðum.“ Mótið byrjar í næstu viku En nú tekur við snarpur undirbúningur hjá Gunnlaugi Árna fyrir Opna bandaríska meistaramótið sem hefst í Southampton í New York-ríki 18. júní. „Þetta verður ekki stærra fyrir hann og þetta verður örugglega smá spennufall til að byrja með að átta sig á þessu. En á heildina litið held ég að það verði mjög jákvætt hvað er stutt í mótið sjálft. Það byrjar bara á fimmtudaginn í næstu viku. Þannig að tíminn er hæfilegur að ná sér niður,“ segir Ólafur Loftsson afreksstjóri GSÍ.
Go to News Site