Fréttastofa RÚV
Starfsmenn sundlaugarinnar á Akureyri þurfa að hafa afskipti af gestum daglega sem klæðast nærbuxum undir sundskýlu. Mbl.is greindi frá því á dögunum að það væri í tísku að fara í sund í nærbuxunum. Forstöðumaður Laugardalslaugar segir að þessi tíska hafi valdið vandræðum í hreinsikerfum sundlauga enda teljist nærbuxur ekki viðurkenndur sundfatnaður. Vandamálið teygir anga sína víða og Gísli Rúnar Gylfason , forstöðumaður sundlauga Akureyrar, hefur sömu sögu að segja. „Við höfum rætt þetta forstöðumenn, okkar á milli. Þetta er landlægt vandamál, þessi tískubylgja,“ segir Gísli Rúnar, sem ræddi nærbuxnanotkun í sundlaugum, eða brókarnotkun líkt og hann kýs að kalla tískubylgjuna, í Morgunútvarpinu á Rás 2. Dæmi eru um að gestir sundlaugarinnar á Akureyri fari í nærbuxum innanundir sundskýlu í sund, beint eftir líkamsrækt. Brókarnotkun í sundi er orðið landlægt vandamál að mati forstöðumanns sundlauga Akureyrar. Hreinlæti er alltaf áskorun í sundi Að tryggja hreinlæti er ekki ný áskorun í sundlaugum en það er tiltölulega nýtt að sjá mörg lög af fatnaði í laugunum. Gísli Rúnar segist þó hafa orðið fyrst var við þetta fyrir um tveimur árum. Burtséð frá brókarnotkun hefur það alltaf verið ákveðin áskorun að láta fólk þvo sér án sundfata. Tískubylgjan lýsir sér þannig að klæðast nærbuxum undir sundskýlunni og toga sundskýluna aðeins niður svo sjáist í nærbuxnastrenginn, sem oftar en ekki er frá þekktu tískumerki. Gísli Rúnar segir að allur gangur sé á því hvort menn séu í sundskýlu yfir nærbuxunum eða stuttbuxum. „Það er mis hreint það sem er þarna undir, það er partur af vandamálinu,“ segir Gísli Rúnar. Dæmi eru um að sundgestir séu að koma beint úr ræktinni og skipti ekki um nærbuxur fyrir sundferðina. Það er það versta. Starfsfólk í sundlaug Akureyrar hefur daglega afskipti af sundlaugargestum sem fara ofan í laugina í nærbuxum. „Kúnninn er mjög óvæginn. Við fáum alveg að heyra það. Við höfum verið kölluð öllum heimsins nöfnum inni í sturtunni,“ segir Gísli Rúnar, sem minnir á að það sé hluti af starfinu að fylgjast með gestum og passa að allir fari eftir reglum og þvoi sér. Sundlaugargestir hafa verið reknir upp úr fyrir að neita að fara úr nærbuxum undir sundfatnaði. „Við sendum menn til baka sem hafa náð að sleppa framhjá.“ Það er til lausn „Grunnvandamálið er hreinlæti. Því meira sem við þvoum okkur áður en við förum ofan í, því minni klór þurfum við að nota. Það eina sem vinnur á þessum skít er klórinn,“ segir Gísli Rúnar. En það er til lausn við vandamálinu. „Framleiðendur eru fljótir að grípa boltann,“ segir Gísli Rúnar. Það eru nefnilega til sundskýlur með streng þar sem sést í merkið. „ Við erum alveg sátt við það ef menn eru í viðurkenndum sundfatnaði, þó að hann sé merktur flottu merki upp úr. Þá erum við algóð, á meðan þetta er allt hreint og fínt.“ Einfaldasta lausnin er hins vegar að þvo sér fyrir sundferðina. „Því meira sem við þvoum okkur, því heilnæmara er vatnið fyrir okkur. Klórinn er það eina sem vinnur á þessari drullu sem kemur ofan í sundlaugina með okkur,“ segir Gísli Rúnar.
Go to News Site