Collector
Giriş Yap
Vilja skýra réttarstöðu sjálfkeyrandi bíla | Collector
Vilja skýra réttarstöðu sjálfkeyrandi bíla

Vilja skýra réttarstöðu sjálfkeyrandi bíla

Tólf þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um sjálfkeyrandi bíla. Þingmennirnir vilja að innviðaráðherra láti endurskoða og ráðast í breytingar á umferðarlögum, lögum um ökutækjatryggingar og lögum um leigubílaakstur. Markmiðið er að skýra réttarstöðu sjálfkeyrandi bíla. Þingmennirnir vilja að í fyrirhuguðu frumvarpi verði settar sérreglur um notkun slíkra bíla og sakarskiptingu tjóna milli framleiðanda og notanda. Þingmennirnir segja ýmis lagaleg álitaefni, svo sem um ábyrgð á tjóni, hvar megi keyra sjálfkeyrandi bílum og hver hámarkshraði þeirra ætti að vera. Visst lagalegt tómarúm er um sjálfkeyrandi bíla, segja þingmennirnir.RÚV / Þórdís Arnljótsdóttir

Go to News Site