Fréttastofa RÚV
Sómalskur fótboltadómari sem átti að dæma á heimsmeistaramótinu í fótbolta hefur verið tekinn af mótinu eftir að hafa verið neitað um að komast inn í Bandaríkin. Þá er miðaverð á leiki margfalt hærra en það var á mótinu í Katar fyrir fjórum árum, sem hefur leitt af sér brunaútsölu á suma leiki. Allt leit út fyrir að Omar Artan, dómari frá Sómalíu, yrði fyrsti dómarinn frá því landi til að dæma á HM. Af því varð ekki. Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) tilkynnti í gær að Artan hefði verið settur af þar sem honum var bannað að koma til Bandaríkjanna. Honum var vísað frá eftir að hann lenti á flugvellinum í Miami. Talsmaður FIFA sagði við AFP-fréttastofuna að sambandið hefði enga möguleika á að hafa áhrif á þessa ákvörðun. Innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna hefði ákveðið þetta og tilkynnt að staða Artan yrði ekki óbreytt að sinni. Áður hafði ráðgjafi ríkisstjórnar Sómalíu staðfest að hann hefði gilda vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Innflytjenda- og landamæraeftirlit Bandaríkjanna segir að Artan hafi verið neitað um að koma til landsins eftir hefðbundna skoðun þar sem óvíst var að hann stæðist tilskyldar kröfur. Sómalía er eitt af þeim löndum sem ríkisstjórn Donalds Trump setti á bannlista til að stemma stigu við komu innflytjenda til Bandaríkjanna. Artan sjálfur, sem var útnefndur dómari ársins í Afríku í fyrra, segist jákvæður þrátt fyrir þetta og vilja hugsa um framtíðina. Ciise Aden Abshir ráðgjafi hjá íþróttamálaráðuneyti Sómalíu, og fyrrverandi landsliðsfyrirliði, gagnrýnir ákvörðunina hins vegar harðlega. „Þetta skaðar ekki aðeins hann persónulega heldur grefur undan skuldbindingum fótboltans til að sýna sanngirni, meta að verðleikum og starfa í sönnum íþróttaanda,“ sagði hann. Miðaverð rýkur upp - og fellur svo niður Annað sem hefur verið mikið í sviðsljósinu er miðaverð á leiki, sem er margfalt hærra en það var á síðasta móti í Katar fyrir fjórum árum. Dýrasti miðinn þar kostaði um 200 þúsund krónur, en dýrasti miðinn á þetta mót kostar hvorki meira né minna en tæplega 33 þúsund dollara, eða ríflega 4 milljónir króna. Þetta er tuttugu sinnum hærra verð en í Katar. Erfitt hefur reynst fyrir FIFA að réttlæta þetta verð. Sambandið hefur sagt að þetta endurspegli bandarískan markað þar sem verð inn á íþróttaviðburði sé hátt, auk þess sem fjármunirnir yrðu notaðir í að þróa fótboltann á heimsvísu. Þetta hefur ekki róað fótboltaáhugamenn sem segja verðið forkastanlegt, svik við HM-hefðir og því jafnvel líkt við einhvers konar fjárkúgun. Gianni Infantino forseti FIFA fullyrti í febrúar að uppselt væri á alla leiki. Nýjustu upplýsingar benda til þess að svo sé ekki. Nú er farið að selja miða á leiki nokkurra af minni þjóðunum vel undir uppsettu verði. Sem dæmi var uppsett verð á leik Jórdaníu og Alsír 471 breskt pund, en það er hægt að fá miða á netinu á 172 pund. Viku fyrir opnunarleikinn voru enn 500 sæti laus á þann leik. Miðaúthlutun til Írans afturkölluð Þá kom upp annað mál tengt miðum í gær. Íranska knattspyrnusambandið upplýsti í gær að Bandaríkin hefðu dregið til baka úthlutun miða til sambandsins á leiki liðsins á HM. Sambandið sakar Bandaríkjamenn um að hindra aðgengi íranskra stuðningsmanna í skugga stríðsins á milli ríkjanna. Reglur FIFA segja að knattspyrnusambönd eigi að fá 8% af miðum á leiki sinna þjóða. Þessum miðum eigi að dreifa til stuðningsmanna í gegnum opinberar leiðir. Íranar höfðu þegar hafið sölu á þessum miðum en sjá nú ekki fram á að geta útvegað einn einasta miða á leikina. Fyrsti leikur þeirra er gegn Nýja-Sjálandi 15. júní. Bandaríkjamenn hafa beitt ýmiss konar skriffinnskubrögðum á Írana. Meðal annars fékk hluti starfsliðsins ekki vegabréfsáritun til landsins. Hvorki FIFA né bandarísk yfirvöld hafa tjáð sig um málið.
Go to News Site