Collector
Giriş Yap
Leigjandinn vildi hvorki greiða leigu né fara – „Þetta er bara búið að rústa mér fjárhagslega“ | Collector
Leigjandinn vildi hvorki greiða leigu né fara – „Þetta er bara búið að rústa mér fjárhagslega“

Leigjandinn vildi hvorki greiða leigu né fara – „Þetta er bara búið að rústa mér fjárhagslega“

Hjörleifur Guðnason íbúðareigandi í Reykjavík segir farir sínar ekki sléttar af því að leigja út íbúð sína. Hann sitji uppi með háar skuldir vegna vangreiddrar leigu. Í fyrra ákvað hann að flytjast aftur til Vestmannaeyja, þaðan sem hann er ættaður, og leigja út íbúð sína í Reykjavík. Í október 2025 hafi kona tekið íbúðina á leigu og fengið hana tveimur vikum fyrr, án þess að greiða aukalega fyrir, í skiptum fyrir að íbúðin væri ekki fullþrifin. Fyrstu tvo mánuðina hafi hún greitt leiguna á umsömdum tíma en í desember hafi hún hætt að greiða leiguna án útskýringa. Svo hafi liðið sex mánuðir þar sem konan neitaði bæði að greiða leigu og flytja út, en Hjörleifur segist þá hafa uppgötvað hve ríkur réttur leigjenda er, jafnvel á kostnað leigusala. Eins og þetta hafi verið planið allan tímann Hjörleifur kveðst hafa sent konunni greiðsluáskorun og hún í kjölfarið haft samband og borið fyrir sig veikindi og innlögn á sjúkrahúsi. Hann hafi sýnt því skilning í fyrstu en síðan hafi ekkert bólað á greiðslu. Hann hafi ítrekað beðið konuna um að greiða leiguna og boðið henni að borga hluta upphæðar og dreifa skuldinni án vaxta. Að lokum hafi hann þurft að rifta samningnum, enda hafi hann þurft að standa undir húsnæðislánum og sjálfur greiða leigu á húsnæði sínu í Eyjum. „Ég gaf henni meira að segja marga sénsa í janúar, að ef leigan yrði greidd þá myndi ég draga uppsögnina á samningnum til baka,“ segir hann. Allt kom þó fyrir ekki og konan sagði að hann yrði bara að bera hana út. „Mér finnst hún hafa hagað sér eins og þetta hafi verið planið allan tímann.“ Félagsþjónusta Reykjavíkurborgar hafði upphaflega skrifað upp á tveggja mánaða tryggingu fyrir konuna og Hjörleifur fékk hana greidda út að lokum, sem reyndist þó erfitt einmitt vegna þess að hann hafði rift leigusamningnum vegna vangoldinnar leigu. „Þau firra sig síðan allri ábyrgð eftir að það er búið að greiða tryggingu,“ segir Hjörleifur. Skemmdir á íbúðinni Hann óskaði eftir leyfi til að bera konuna út fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þann 12. febrúar. Þá tók við lengra ferli þar sem ítrekað var óskað eftir staðfestingum á að skjöl og gögn hefðu skilað sér til leigjenda með löglegum hætti. Þann 29. apríl – rúmum fimm mánuðum eftir að konan hætti að greiða leiguna – fékk Hjörleifur leyfi til að bera hana út. Sáttafundur milli hans og konunnar hjá sýslumanni var aftur á móti fyrst settur um miðjan maí og á meðan dvaldi konan í íbúðinni. Þá hafi sýslumaður lagt til að konan fengi að dvelja í íbúðinni fram í lok júní eða í sex vikur til viðbótar leigulaust. Lögfræðingur Hjörleifs mótmælti því að konan fengi svo langan frest, enda yrðu þá liðnir sjö mánuðir frá því að hún hætti að greiða leigu. Fallist var á þau sjónarmið og útburður dagsettur tveimur vikum síðar. Konan flutti út nokkrum dögum fyrir útburð, segir Hjörleifur, og tilkynnti honum að leki væri í íbúðinni og skemmdir á parketi. Þá hafi hún tekið með sér skúffur, hirslur og stiga sem tilheyrðu honum. Vegna ástandsins á íbúðinni hafi hann ekki séð sér fært að setja íbúðina aftur á leigu strax. „Ég er mjög smeykur við að leigja út aftur“ Hjörleifur segir að konan skuldi honum í dag um 1,8 milljónir í leigu auk lögfræðikostnaðar. Þar sé ekki innifalinn kostnaður vegna tjóns á íbúðinni. Hann sér ekki fram á að konan greiði krónu til baka enda telji hann hana engu skeyta um það fjárhagslega tjón og álag sem hún hafi valdið honum. „Ég er í sannleika sagt búinn að þurfa að frysta húsnæðislánið. Ég er ekki lánshæfur lengur út af þessu. Þetta er bara búið að rústa mér fjárhagslega og andlega.“ Fjölskylda hans hafi sem betur fer stutt við bakið á honum og foreldrar hans aðstoðað hann fjárhagslega til að standa straum af lögfræðikostnaði. Þau aðstoði hann nú við að finna nýjan leigjanda og betri tryggingar. „En ég er mjög smeykur við að leigja út aftur.“

Go to News Site