Fréttastofa RÚV
Öllum Rússum sem hafa tekið þátt í hernaðaraðgerðum í Úkraínu verður bannað að koma inn á Schengen-svæðið. Þetta er hluti af tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um nýjar refsiaðgerðir gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu, sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB í dag. Dómsmála- og utanríkisráðherrar ellefu ríkja innan Schengen, þar á meðal Íslands, lögðu í síðustu viku til að reglur um vegabréfsáritanir fyrir Rússa yrðu hertar verulega. Nýr pakki refsiaðgerða Evrópusambandsins er sá 21. síðan allsherjarinnrás Rússa hófst vorið 2022; í honum er einnig lagt til að hert verði á aðgerðum gegn svokölluðum skuggaflota Rússa, sem er notaður til að koma olíu á markaði fram hjá viðskiptahöftum.
Go to News Site