Collector
Giriş Yap
Mörgum þyki ekki tiltökumál að aka undir áhrifum fíkniefna | Collector
Mörgum þyki ekki tiltökumál að aka undir áhrifum fíkniefna

Mörgum þyki ekki tiltökumál að aka undir áhrifum fíkniefna

Akstur undir áhrifum fíkniefna hefur færst í vöxt síðustu ár og töluvert fleiri hafa verið kærðir það sem af er ári en á sama tíma undanfarin ár. Fíkniefni eru meira vandamál en áfengi hjá yngra fólki sem leitar hjálpar hjá SÁÁ á Vogi. Aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þykir áhyggjuefni að mörgum þyki ekki tiltökumál að aka undir áhrifum. Lögreglan hefur gripið yfir sjö hundruð vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna það sem af er ári, þar af tæplega 180 í maí. Þetta er fjölgun um rúmlega hundrað miðað við sama tíma í fyrra og yfir 270 frá sama tíma 2024. „Þetta er náttúrulega bara ekki í lagi“ Ekkert átak í vímuefnamælingum eða annað í vinnubrögðum lögreglu skýrir þessa fjölgun, segir Logi Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Þetta er bara sífelluverkefni hjá okkur. Jú, við förum í tímabundin átök í hinu og þessu varðandi umferðamál, en það er ekkert sem getur skýrt þetta sérstaklega,“ segir Logi. „Yfirleitt er þetta nokkuð jafnt en þetta hefur verið svolítill stígandi í þessu núna á vormánuðum á þessu ári. Ef maður rýnir í tölurnar þá er þetta óvenjulega mikil aukning núna það sem af er apríl og maí.“ Logi segir brotin dreifast nokkuð jafnt yfir höfuðborgarsvæðið, aldurshópa, tíma sólarhrings og að ekkert tiltekið fíkniefni standi sérstaklega upp úr. Margir skeyti litlu um að aka undir áhrifum þrátt fyrir hættu á sektum og að verða jafnvel sviptir ökuréttindum. „Þetta er náttúrulega bara ekki í lagi. Það virðist vera að ákveðinn fjöldi fólks telji þetta bara vera í lagi að vera undir áhrifum fíkniefna við akstur ökutækja, sem er vissulega áhyggjuefni.“ Fíkniefni algengari en áfengi hjá yngra fólki Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ, segist ekki hafa tekið eftir mynstri í samfélaginu sem gæti skýrt hvers vegna akstur undir áhrifum fíkniefna sé að aukast meira en ölvunarakstur. Það þýði hins vegar ekki að það sé ekki til staðar því að merki um breytingar í vímuefnaneyslu innan samfélagsins gætu tekið einhver ár að koma í ljós. Áfengi er enn efst á lista aðalvímuefnagreiningar hjá einstaklingum sem leita á sjúkrahúsið Vog og mun algengara en öll önnur vímuefni. Hins vegar jafnast dreifingin þegar litið er til yngra fólks og eru kannabis og kókaín ofar á listanum heldur en áfengi meðal 25 ára og yngri síðustu fjögur ár. Fleiri slasaðir vegna ölvunaraksturs Tíu hafa látið lífið í slysi sem rekja mátti til aksturs undir áhrifum fíkniefna, samkvæmt gögnum Samgöngustofu, og jafn margir af völdum ölvunaraksturs. Engin banaslys urðu af þessum orsökum í fyrra. Hins vegar hafa fleiri slasast af völdum ölvunaraksturs síðasta áratuginn. 44 slösuðust vegna ölvunaraksturs í fyrra, þar af átta alvarlega, og að meðaltali 52 hafa slasast árlega síðasta áratuginn. 33 slösuðust af völdum aksturs undir áhrifum fíkniefna á síðasta ári, þrír alvarlega. 43 hafa slasast árlega að meðaltali síðustu tíu ár af þeim orsökum. Sífellt færri segjast aka undir áhrifum áfengis, samkvæmt viðhorfskönnun Samgöngustofu. Árið 2016 sögðust 29% hafa ekið eftir að hafa drukkið að minnsta kosti einn áfengan drykk og 11% eftir tvo eða fleiri drykki. Hlutfall þeirra sem sögðust hafa ekið eftir einn drykk var 21% í fyrra og 10% sögðust hafa ekið eftir að hafa drukkið tvo eða fleiri.

Go to News Site