Fréttastofa RÚV
Frá loftárás Ísraelsmanna í Týros.AP / Mohammed Zaatari Minnst átta voru drepnir og 32 særðir í árásum Ísraelsmanna á borgina Týros í suðurhluta Líbanon, að sögn heilbrigðisráðuneytis landsins. Þetta eru aðeins bráðabirgðatölur. Íranar höfðu í gær hótað að halda áfram árásum á Ísrael ef Ísraelsmenn héldu áfram árásum á Líbanon. Sendiherra Bandaríkjanna í Líbanon segir að viðræður á milli þjóðanna hefjist á ný fljótlega, en Hezbollah-samtökin, sem árásir Ísraels beinast gegn, tóku engan þátt í fyrri viðræðum.
Go to News Site