Fréttastofa RÚV
Landris heldur áfram við Svartsengi með sama hraða og verið hefur. Líkanareikningar gefa til kynna að 27,5 milljónir rúmmetra af kviku hafi safnast upp frá því síðasta eldgosi lauk í júlí í fyrra. Jarðskjálftavirkni er áfram lítil. Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt. Líkur á eldgosi aukast meðan kvikusöfnun heldur áfram. Mest er hættan við Sundhnúksgíga, þar sem fyrri eldgos hafa orðið. Þar telst hættan á eldgosi mikil en minnkar eftir því sem fjær dregur. Hraunbreiða eftir fyrri eldgos á Reykjanesskaga.Guðmundur Bergkvist
Go to News Site