Fréttastofa RÚV
Umsóknir um meistaranám við Háskólann á Akureyri eru tvöfalt fleiri en í fyrra. Rektor skólans vonast til þess að geta tekið við sem flestum. Alls bárust 2.343 umsóknir um nám við Háskólann á Akureyri í haust. Það er 8,5 prósenta fjölgun frá fyrra ári. Áslaug Ásgeirsdóttir rektor skólans segir ýmislegt skýra aukinn áhuga á námi við skólann. Sveigjanleiki námsins sé til að mynda aðdráttarafl. „Nánast allt námið hjá okkur er fjarnám með lotum og ég held að það henti fólki bara mjög vel í nútímasamfélagi. Við erum líka bara með gott nám og nemendur okkar sem útskrifast eru að gera góða hluti í vinnu líka, þannig ég held að þetta sé blanda af mörgu,“ segir Áslaug. Umsóknum um meistaranám fjölgaði mest, sérstaklega í kennaradeild, lagadeild og viðskiptadeild. „Við erum rosalega ánægð að sjá það og við áttum ekki von á svona mikilli aukningu. Við höfum verið að byggja upp meistaranám undanfarin ár og sú uppbygging er greinilega að skila árangri. Ég held að það bendi til þess að við þurfum bara að halda áfram á þeirri vegferð,“ segir Áslaug. Umsækjendur víðs vegar frá Um helmingur þeirra sem sækja um er frá höfuðborgarsvæðinu, einhverjir frá útlöndum og svo frá Norður- og Austurlandi. Uppbygging nýrra stúdentagarða er í burðarliðnum á Akureyri og framkvæmdir eiga að hefjast í júlí – vonir standa til að hægt verði að taka fyrstu íbúðirnar í notkun sumarið 2028. Áslaug segir skólann vel undir það búinn að taka við sem flestum nemendum. „Við erum vel undirbúin undir það. Við erum búin að vera í samræðum við deildirnar þar sem aukningin er og okkur sýnist þetta alveg geta gengið.“
Go to News Site