Collector
Giriş Yap
Loka ekki hjúkrunardeildinni Fossheimum – hjúkrunarrýmum á Suðurlandi fjölgar um sex | Collector
Loka ekki hjúkrunardeildinni Fossheimum – hjúkrunarrýmum á Suðurlandi fjölgar um sex

Loka ekki hjúkrunardeildinni Fossheimum – hjúkrunarrýmum á Suðurlandi fjölgar um sex

Loka á hjúkrunardeildinni Ljósheimum á Selfossi á næsta ári en ekki Ljósheimum og Fossheimum eins og sagt var á vef RÚV á sunnudag. Þetta áréttar heilbrigðisráðuneytið í fréttatilkynningu í dag. Í Ljósheimum eru 20 hjúkrunarrými. Engin breyting verður á rekstri Fossheima. Þegar nær dregur lokun Ljósheima verður hætt að taka við nýjum íbúum inn á hjúkrunardeildina þegar rými losna. Um mitt næsta ár, þegar rekstri deildarinnar verður hætt, býðst íbúum flutningur, á hjúkrunardeildina Fossheima, hjúkrunarheimilið Móberg og hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði eða annað hjúkrunarheimili í samráði við óskir íbúa. Enginn þarf að óttast flutning um langan veg eða að hjón verði aðskilin. Heildarfjölgun um sex á Suðurlandi Ráðuneytið segir að þrátt fyrir lokun Ljósheima fækki hjúkrunarrýmum ekki á Suðurlandi. Um mitt næsta ár verður opnað nýtt hjúkrunarheimili Áss í Hveragerði og hjúkrunarrýmum þar fjölgar um 26. Hjúkrunarrýmum fjölgar því í heildina um sex á Suðurlandi. Í fréttatilkynningunni er einnig tekið fram að sá forgangur sem Landspítali hafði að 40 af 60 hjúkrunarrýmum á Móbergi á Selfossi er ekki lengur í gildi og því nýtist Móberg íbúum á Suðurlandi í auknum mæli.

Go to News Site