Collector
Giriş Yap
Efla íslenskan tónlistariðnað með lagahöfundabúðum | Collector
Efla íslenskan tónlistariðnað með lagahöfundabúðum

Efla íslenskan tónlistariðnað með lagahöfundabúðum

„Við erum hér með um 20 tónlistaraðila sem koma, semja tónlist, tengjast og efla tengslanetið og semja tónlist sem þið eruð að heyra í útvarpinu,“ segir Steinunn þegar hún er spurð hvað lagahöfundabúðirnar Airsongs séu. Markmið búðanna er að efla íslenskan tónlistariðnað með samstarfi, tengslamyndun og námskeiðum. Þátttakendur vinna saman í litlum hópum og semja fjölda nýrra laga á aðeins örfáum dögum. „Við erum búin að vera að gera þetta í þrjú ár,“ segir Steinunn. Á þessum þremur árum hafa yfir 176 lög verið samin. Þú getur séð áhugavert viðtal við Steinunni í spilaranum hér að ofan. Miðstöðin er nýr dægurmenningarþáttur á RÚV, alla fimmtudaga og í spilaranum þegar þér hentar.

Go to News Site