Fréttastofa RÚV
Fimm karlar voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við innflutning á talsverðu magni sterkra fíkniefna. Mennirnir voru handteknir í Reykjavík og Hveragerði. Þeir eru tveir Íslendingar og þrír erlendir ríkisborgarar. Fíkniefnin voru kókaín og amfetamín sem var flutt til Íslands með Norrænu, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í dag að mennirnir skyldu sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 19. júní. Rannsókn málsins miðar vel, en hún hefur verið unnin í samstarfi nokkurra lögregluembætta, auk Tollgæslunnar.
Go to News Site