Fréttastofa RÚV
Rannsókn á málum þriggja barna, vegna meintra brota á leikskólanum Múlaborg, hefur aftur verið felld niður. Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hannes Valle, fyrrverandi starfsmaður leikskólans, var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar undir lok síðasta mánaðar fyrir kynferðisbrot gegn stúlku á leikskólanum. Lögregla hafði minnst tíu mál til rannsóknar en einungis eitt leiddi til ákæru. Foreldrar fjögurra barna kærðu niðurfellingu mála til ríkissaksóknara. Ríkissaksóknari krafðist þess í mars að mál þriggja barna yrðu rannsökuð betur. Hildur Sunna segir ríkissaksóknara hafa talið að tilteknir þættir væru órannsakaðir, en það hafi byggt á misskilningi. Þættirnir hefðu þegar verið rannsakaðir af lögreglu og ríkissaksóknari hafi því falið lögreglu að gera eitthvað sem hafði þegar verið gert. Ekkert hafi komið fram við rannsókn þeirra sem gefi til kynna að brotið hafi verið á börnunum.
Go to News Site