Collector
Giriş Yap
Frumvarp um brottvísunarstöð samþykkt | Collector
Frumvarp um brottvísunarstöð samþykkt

Frumvarp um brottvísunarstöð samþykkt

Brottvísunarstöð tekur til starfa 1. desember eftir að Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis í dag. Breytingatillögur um vistarverur barnafjölskyldna voru samþykktar. Frumvarpið var umdeilt og var aðallega gagnrýnt fyrir að börn skyldu vistuð í lokuðu úrræði. Brottvísunarstöðinni er ætlað að hýsa útlendinga sem vísa á úr landi. Henni verður fundið húsnæði á Suðurnesjum. Þær breytingar voru gerðar á frumvarpinu milli fyrstu og annarrar umræðu að barnafjölskyldur skyldu vistaðar fjarri einstaklingum og þeim yrði tryggð afmörkuð svefnaðstaða þótt önnur aðstaða, svo sem eldunar- og salernisaðstaða, yrði sameiginleg. Gengið var lengra milli annarrar og þriðju umræðu og kveður frumvarpið á um að barnafjölskyldur fái afmarkað rými með að lágmarki svefnaðstöðu, tómstundasvæði innan- og utandyra, auk salernis- og eldunaraðstöðu. Þá verður dómsmálaráðherra gert að leggja skýrslu fyrir Alþingi innan tólf mánaða um hvernig lögunum hefur verið framfylgt. Í skýrslunni á að koma fram hversu margir voru vistaðir í brottvísunarstöðunni og hversu lengi, gera grein fyrir stöðu barnafjölskyldna og tilgreina hversu oft og í hvaða tilfellum valdbeitingu var beitt. Frumvarpið var samþykkt með 42 atkvæðum þar sem þingmenn stjórnarflokkanna og Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði með frumvarpinu. Þingmenn Miðflokks og Framsóknarflokks sátu hjá.

Go to News Site